Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1938, Side 28
VAKA 7. árgangur . 7. ársfjórðungur
annað sjáanlegt en sambúð Dana
við hið þýzksinnaða fólk, sé sæmi-
lega vinsamleg og góð. En er
kynnin verða nánari, kemur hitt
og í ljós, að undir niðri fer fram
dagleg barátta þeirra í milli.
Barátta um jarðeignir, barátta
um skoðanir í stjórnmálum, um
uppeldi æskunnar, um manns-
sálir. Þessi viðureign fer fram
undir margvíslegustu formum,
allt frá opinberum áróðri blað-
anna og niður í hin ógeðslegustu
óhæfuverk og spellvirki er fram-
in eru af nazistum á nætur-
þeli. Þjóðverjar leggja t. d. mikið
kapp á að kaupa danskar jarð-
eignir og koma yfir á þýzkar
hendur. Til þeirra hluta eiga þeir
öfluga lánsstofnun, einskonar
búnaðarbanka, sem stjórnað er
frá Haderslev. En með hverri
keyptri jörð og þýzkum ábúanda
er von um vaxandi fylgi, aukið til-
efni til að hafa uppi háværar
kröfur um þýzka íhlutun og aukn-
ir möguleikar til sameiningar við
ríki Hitlers.
Þó er þessi áróður líklega rek-
inn einna harðast á vettvangi
skólamálanna.
Gagnvart hinu þýzklundaða
fólki landsins er fræðslulöggjöf
Dana furðulega frjálsleg.
Auk hinna dönsku barnaskóla
er í hverjum kaupstað Suður-Jót-
lands þýzkur skóli, með þýzku
sem kennslumál, fyrir þá íbúa, er
slíkt fyrirkomulag kjósa, vitan-
22
lega kostaður af danska ríkinu.
Vandamönnum þeirra barna, er
þá skóla sækja, er í sjálfsvald
sett, hvort þeir vilja láta kenna
börnunum dönsku í skólunum,
auk þýzkunnar, eða ekki.
Úti á landinu fer kennslumál
skólanna eftir því, hvort málið
meiri hluti fólksins í fræðsluhér-
uðunum talar, en óski tíundi hluti
íbúanna, þeirra, sem hafa börn
á framfæri, eftir kennslu á öðru
máli, þ. e. þýzku, eru jafnan gerð-
ar ráðstafanir til að fullnægja
þeim tilmælum með stofnun
þýzkra skóla. Þess vegna er mál-
um svo háttað, að jafnvel í smá-
þorpum eru oft tveir skólar,
danskur og þýzkur. Auk þess eru í
I
stærri bæjum framhaldsskólar
fyrir hinn þýzka minnia hlut
Kennarar þeirra eru þýzk-mennt-
aðir og kostar danska ríkið þá
kennara til fullnaðarnáms í
Þýzkalandi.
En auk allra þessara hlunn-
inda, er þýzki minni hlutinn nýt-
ur, er og fullkomlega leyfilegt
að stofna þýzka einkaskóla. Þeir
skólar njóta styrks frá danska
ríkinu, en þó því aðeins, að nem-
endur hvers séu ekki færri en
tíu talsins.Árlegur styrkur danska
ríkisins til slíkra skóla er um 50
kr. á hvern nemenda. — Síðan
nazistar komust til valda, hafa
þvílíkir skólar sprottið upp unn-
vörpum norðan landamæranna,
enda eru þeir eitthvert bezta