Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1938, Blaðsíða 33
1. árganpir . 1. ársfjórdungur VAKA
11 <1 iii 11 lul iiv <»ÍNliiNon:
itdna
V ök uiii aima
Félagssamtök Vökumanna urðu
til í skólum landsins og þar
hefir starfssviðþeirra verið. Starfs-
saga þeirra er ekki löng, því að
Vökumannahreyfingin er ung og
að ýmsu leyti í mótun enn. Lands-
samband stofnuðu Vökumenn á
Þingvöllum vorið 1937. Þeir hafa
eignazt fagurt og táknrænt fé-
lagsmerki, félagsfána, Hvítbláinn
og félagssöng. Að þeirra tilhlutan
hefur og VAKA, hið nýja tímarit
um þjóðfélags. og menningarmál
göngu sína.
Útgáfu VÖKU er tvímælalaust
merkilegasti áfanginn, sem enn
hefir verið náð í starfsemi Vöku-
manna. Starfssvið þeirra hefir
eingöngu verið í allmörgum skól-
um landsins, eins og áður getur,
en eigi að síður hefir það verið
ætlun Vökumanna að vekja eftir-
tekt alþjóðar, og þá einkum unga
fólksins, á þeim málum, sem þeir
telja þjóðinni nauðsynlegt að
fylkja sér um. Það hlutverk er
VÖKU ætlað.
VAKA nýtur að sjálfsögðu
stuðnings allra Vökumanna, en
auk pess hefir fjöldi manna, sem
stendur utan við hin eiginlegu
Vökumannasamtök, en er hlynnt-
ur stefnu þeirra, heitið VÖKU
stuðningi og brautargengi með
því að skrifa fyrir hana, vinna að
útbreiðslu hennar o. s. frv. Þessa
má líka sjá stað nú þegar. Áður
en VAKA hóf göngu sína, hafði
hún fengið fleiri áskrifendur en
nokkurt annað íslenzkt tímarit
hefir fengið í byrjun, og því má
óhætt treysta, að útbreiðsla
VÖKU eigi enn eftir að vaxa að
miklum mun.
Inngangsorð greinar þessarar
skulu ekki höfð fleiri, heldur vikið
að því, sem er höfuðtilgangur
hennar, en það er að gera í ör-
stuttu máli grein fyrir höfuð-
stefnu Vökumanna.
2 rl