Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1938, Page 86
VAKA 1. árgangur . f. ársfjórdungut
í Atpafjöllum eru margir tindar, sem erfiðir eru uppgöngu. Einn þeirra heitir
Eigers. Fyrir skömmu siðan tókst Þjóðverjunum fjórum, sem sjást hér fremstir
á myndinni, að komast upp á þann tind fyrstum manna.
Ungfrú Vaughan segir, að aðalatriðið
í þessu sambandi sé það, að sjá til að
fæðingin verði sem allra eðlilegust. Og
það telur hún sig gera með því að láta
hinar tilvonandi mæður æfa sérstakt
fimleikakerfi, sem gert hefir verið í þessu
skyni, tvo síðustu mánuði meðgöngu-
tímans. Fimleikaæfingarnar eiga að or-
saka að allir vöðvar verði teygjanlegri
og fæðingin þess vegna auðveldari.
Hjónaskilnaöir í Japan
Hjónabandslöggjöf Japana, sem var
samin 1899, er mjög úrelt orðin, a. m. k.
ef miðað er við hugsunarhátt Vestur-
landabúa. Réttur konunnar er mjög
fyrir borð borinn í þessari löggjöf. Karl-
maður getur skilið við konu sína um-
svifalaust, og án þess að hafa við hana
nokkrar skyldur upp frá því. Hinsvegar
er miklum vandkvæðum bundið, og ná-
lega ógerningum, fyrir konu að fá skiln-
80
að. Hér við bætist svo, að fráskildar
konur eru skoðaðar sem hin verstu úr-
hrök, og eru þeim nálega allar bjargir
bannaðar til lifsafkomu, aðrar en þær
að vera á framfæri einhverra ættmenna
sinna.
Öflug hreyfing er nú vöknuð í Japan
til breytinga og bóta á hjónabandslög-
gjöfinni.
Dýrt frímerki
Gömul frímerki komast oft í geypi-
verð, svo sem kunnugt er. Fyrir skömmu
síðan fannst í Englandi frímerki, sem
gefið var út árið 1682, eitt hinna svo-
kölluðu William Dockwra frímerkja. Sala
þeirra frímerkja var bönnuð á sínum
tíma og var megnið af upplagi þeirra
eyðilagt. Þó er til eitt slíkt frímerki á
Brezka safninu — British Museum. —
Hið nýfundna frímerki er virt á 100
pund sterling.