Heilbrigt líf - 01.12.1963, Page 33
P. V. G. Kolka:
ÍBÚÐARVANDAMÁL
ALDRADS
FÓLKS
Kafli úr erindi um daginn og veginn 25/6 1962.
Líklega ver engin þjóð tiltölnlega jafnmiklu af tekj-
um sínum til íbúðarhúsabygginga eins og Islendingar.
Þetta er að nokkru leyti eðlilegt, því að veðráttan krefst
hér vandaðra húsa og þau eru nú orðið gerð úr varan-
legu efni, en auk þess er upphitun liér dýrari en víðast
hvar annarsstaðar. Hinu verður þó ekki mótmælt, að
margir hafa reist sér húsnæði fram yfir skynsamlegar
þarfir og þar með hurðarás um öxl, því að nýjar íbúðir
hér eru til jafnaðar miklu stærri en hjá auðugum ná-
grönnum, eins og Svíum og Dönum. Þetta á bæði við
í borg og sveit, þó að ekki sé getið þeirra undarlegaheita
að finna tvö stór steinliús á sömu jörð og einsetumann
i báðum. Nokkur breyting er þó að gerast í þessu efni
og meira er nú smiðað af lióflega stórum ibúðum, a.m.k.
hér í höfuðborginni, en áður, og þar miðað einkurn við
þarfir ungra hjóna, því að giftingaraldur hefur færzt
hér mjög niður frá því sem áður var, þegar það þótti
sjálfsagt að safna efni í bústofn í mörg ár, áður en farið
Heilbrigt líf
31