Heilbrigt líf - 01.12.1963, Page 65
ur varar við
niinni liáttar
breytingar, ef
um daglega eða
vikulega athug-
u n e r a ð
ræða.
Sjálfa rann-
sóknina er bezt
að framkvæma
á þann liátt, að
skipta brjóstinu
niður í fimm
svæði, og athuga
svæði fyrir sig.
Þessi svæði eru 2. mynd.
sýndámeðfylgj-
andi teikningu. (M. 1). Sjálfu brjóstinu er skipt niður í
fjóra hluta (A, B, C og D) og að lokum brjóstvartan og
svæðið kringuin hana (E á myndinni) athugað sérstaklega.
Fyrst skulu brjóstin athuguð fvrir framan spegil, og
þá sérstaklega gáð að, hvort nokkur stærðarmunur er
sjáanlegur brjóstvörtur jafnháar eða önnur meira inn-
dregin en hin. Ekki er sjaldgæft að brjóst séu frá upp-
hafi misstór, og er það vitaskuld algerlega hættulaust.
Ilins vegar ber að gefa gaum að nýtilkomnum stærðar-
breytinum, sem ekki eiga sínar þekktu orsakir (t. d.
bólgu i öðru brjóstinu eftir fæðingu). Að þessari at-
lmgun lokinni er bezt að legg'jast niður með púða undir
herðunum, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum (2
og' 3), og siðan rannsaka hvert áðurnefnt svæði fyrir sig
með flötum lófa mótsettrar handar (hægra brjóst með
vinstri liendi og vinstra brjóst með liægri hendi). Skal
höndin lögð létt á brjóstið og siðan lireyfð til lítils bátt-
ar frá brjóstvörtunni út lil jaðars brjóstsins. Finnst þá
Heilbrigt líf 63
L