Heilbrigt líf - 01.12.1963, Page 87
ur Guðmundsson, trésmiður. Endurskoðendur: Jón
Kristinsson, skólastjóri, og Gísli Maríasson, verka-
maður.
Aðalhvatamaður að stofnun deildarinnar var Guð-
steinn Þengilsson, héraðslæknir, og hafði hann um það
samráð við stjórn R. K. í., sem nú hefur staðfest sam-
þykktir deildarinnar.
í Alsír-söfnuninni vakti framlag Suðureyringa sér-
staka athygli, en fórnfýsi og sjálfsafneitun barna og
unglinga þar var einstæð.
Starfsemi deildanna.
Starf deilda innan R. Iv. I. hefur verið mjög misjafn-
tega mikið.
Deildirnar eru nú 19, en heildartala félagsmanna
3485.
Sjö félagsdeildir annast sjúkraflutninga, tvær reka
sumardvalarheimili fyrir hörn, sex hafa kennt hjálp
í viðlögum, átta annazt lán á sjúkragögnum, ein rekur
ljósbaðstofu og þrjár hafa unglingadeildir. Allar hafa
deildirnar séð um merkjasölu fyrir R. K., og sextán tek-
ið þátl í söfnun fjár og söiu jólakorta, en að öðru levli
hefur starfsemin legið niðri hjá sjö deildum, og sex
hafa ekki sent ársskýrslur og ekki greitt árgjöld.
Um starfsemi deildanna þykir enn fremur rélt að
geta Jjessa sérstaklega:
Eins og áður er sagt, reyndi stjórn R. Iv. í. að fá meiri
hreidd í kennslu í hjálp i viðlögum en verið hefur og
stofnaði til námskeiða fyrir þá, sem kenna vildu al-
menningi jDessa grein. Það fræðslustarf er ekki aðeins
æskilegt verkefni fyrir deildirnar vegna þeiri'ar fræðslu,
sem það veitir almenningi, heldur er Jmð einnig líklegt
til að auka félagsstarfið að öðru leyti og afla nýrra
félagsmanna.
Þessi viðleitni stjórnarinnar hcfur ekki borið tilætlað-
Heilbrigt líf
85