Úrval - 01.09.1942, Page 11
„LlTTU TIL MAURANNA! “
9
göng, leggja brýr, rækta akra
og garða og gæta margskonar
húsdýra. (Hér má geta þess, að
maurarnir hafa tekið ekki færri
en 584 tegundir dýra í þjónustu
sína sem húsdýr). Öll er þessi
kvennahjörð kattþrifin, og hefir
hver þeirra með sér kamb og
bursta, sem þær snyrta sig með
nokkrum sinnum á degi hverj-
um. Auk þessarra starfa verða
þessar konur að gæta ótölulegs
f jölda barna, sem eru svo við-
kvæm, að hin minnstu veðra-
brigði geta orðið þeim að bana.
Það verður því sífellt að vera
að flytja börnin frá einum stað
til annars, til að halda á þeim
hæfilegum hita.
Þó að allar þessar verkakon-
ur séu sífellt að afla matar,
neytir engin þeirra agnar ögn
fram yfir það, sem þeim er
nauðsynlegt, og engin þeirra sef-
ur eina sekúndu yfir sig. En
furðulegast af öllu er, að þess-
ar konur eru kynlausar. Að þær
eru konur eigi að síður, sést á
því, að þær fæða stundum af
sér afkvæmi, eingetin, en þær
geta ekki tekið frjóvgun. Þær
hafa raunverulega bælt niður
hjá sér alia kynhvöt.
Verndarar þessarra verka-
kvenna er sveit hermanna, sem
einnig hjálpa nokkuð til við bú-
störfin. Þessir hermenn eru
stórir og sterkir, og svo frá-
brugðnir verkakonunum að
sköpulagi, að þeir virðast í
fyrstu alls ekki vera af sama
kynstofni. Merkilegast við þessa
hermenn er þó, að þeir eru kven-
menn líka, en þeir eru kynlausir
kvenmenn. Þeir hafa einnig bælt
niður hjá sér kynhvötina.
Flest börnin eru afkvæmi
fárra mæðra, sem sérstaklega
eru valdar til að ala börn og
ekki fá að gera neitt annað. Með
þessar mæður er farið eins og
drottningar. Þær eru stríðaldar
og stjanað við þær á allan hátt.
Þær fá ekki að fara út nema
undir strangri gæzlu og mega
ekki á neinn hátt tefla lífi sínu
í tvísýnu. Líf þegnanna snýst
allt um þær.
Að lokum ber að telja karl-
mennina. Spyrja mætti, hvers
vegna kvenþjóðin hafi tekið að
sér hervarnirnar í staðinn fyrir
að karlmennirnir hefðu þær. Svo
virðist sem kvenþjóðin hafi
meiri orkuforða, og að öll sú
orka, sem farið hefði til sköp-
unar nýs lífs og viðhalds því,
hafi umbreytzt og verið tekin í
þjónustu hernaðarins. Karl-
mennirnir eru litlir og veik-