Úrval - 01.09.1942, Qupperneq 62
60
ÚRVAL
Ég veit vel, að ykkur finnst
þetta óttalegt. Við erum enn svo
ungir. En guð veit, að málefni
okkar var réttlátt. Ég hugsa, að
þið eigið miklu erfiðara en ég,
því ég veit, að ég er búinn að
játa allar syndir mínar fyrir
honum og hefi öðlast fulla ró-
semi. Syrgið því ekki. Treystið
guði og biðjið um styrk.
Mamma, elsku mamma. Mig
langar að taka þig í faðminn.
Fyrirgefðu mér allt, sem ég
kann að hafa gert rangt. Gráttu
ekki, mamma mín. Vertu hug-
rökk. Þú átt enn börn á lífi —
það er annað með frú L. Ég
veit, að ég mun sjá ykkur öll
aftur. Þinn elskandi sonur, Kees,
sendir þér síðasta kossinn.
Pabbi, fyrirgefðu mér líka.
Vertu styrkur í trú þinni, sem
ég veit þú átt, eins og mamma.
Syrgðu ekki en þakkaðu guði að
við getum átt vissuna um hans
náð. Segðu ekki: ,,Úr því þú ert
farinn, getur friðurinn ekki orð-
ið okkur til neinnar gleði fram-
ar,“ því ég gaf þó lífið fyrir
landið mitt, eins og svo margir
eru að gera á þessum tímum.
Gef mér hönd þína. Verði guðs
vilji.
Jan, Bep, E1 og Fien — ég
kveð ykkur öll. Verið styrk og
biðjið guð um þrek. Trúið á
hann og hann mun vel fyrir öllu
sjá. Verið góð við pabba og
mömmu. Kees bróðir ykkar
sendir ykkur hjartans kveðju.
Heilsið litlu bræðrum mínum
og systrum. Má vera að þau
skilji þetta ekki vel enn þá, en
innrætið þeim líka að trúa.
Heilsið öllum frá okkur fjór-
um. Innilegar þakkir fyrir allt,
sem fyrir mig hefir verið gert.
Við erum hugrakkir. Verið
þið það líka. Þeir geta tekið
líkamann. Sálin er í guðs hendi.
Það skyldi öllum nægja til
huggunar.
Ég er að fara — unz við hitt-
umst aftur í nýrri, fagnaðar-
ríkari einingu. Guð blessi ykkur
öll.
Hatið engan. Ég dey án hat-
urs. Guð stýrir öllum hlutum.
Kees.
JJUGSJÓNIR eru eins og stjörnur. Þú getur ekki handsamað
þær. En eins og sjófarandinn á auðn úthafsins velurðu þér
þær fyrir leiðarstjörnur og nærð þannig settu marki.