Úrval - 01.09.1942, Side 130
128
ÚRVAL
kann ekki við að vera sigruð og
hún mun því reka sigurvegar-
ann af höndum sér. Frjálsir
rnenn geta ekki hafið styrjöld,
en þegar hún hefir á annað borð
verið hafin þá er ekkert til, sem
getur hindrað sigur þeirra. Hóp-
mennin, sem elta einn foringja,
geta ekki leikið það eftir og þess
vegna er það, að það eru alltaf
hópmenni, sem sigra í orustum,
en frjálsu mennirnir, sem bera
hærra hlut í styrjöld. Þér mun-
uð komast að því, að þetta er
sannleikur, herra minn.“
Lanser hafði rétt úr sér enn
meira. „Skipanir mínar eru ótví-
ræðar,“ sagði hann. „Klukkan
ellefu var fresturinn útrunninn.
Hg er búinn að taka gisla.
Ef ofbeldisverk verða framin,
munu gislarnir verða teknir af
lífi.“
„Ætlið þér að hlýða þessari
skipun, enda þótt þér vitið, að
þær muni ekki koma að neinu
gagni, ofursti?“ spurði Winter.
Lanser beit á jaxlinn. „Ég
mun framkvæma skipanir mín-
ar, hvernig sem þær hljóða, en
ég held að ávarp frá ykkur
mundi geta bjargað mörgum
mannslí.fum.“
Sprenging heyrðist úr f jarska
og bergmál hennar byltist milli
fjallahlíðanna. Flautan við
kolanámuna gaf frá sér háan
skræk. Það var eins og Orden
hrykki við andartak, en svo
brosti hann. Þá kvað við önnur
sprenging — að þessu sinni nær
og hærri — og hún bergmálaði
milli f jallahlíðanna. Orden leit á
úrið sitt og lagði það síðan í lófa
Winters.
„Hvernig var það með flug-
urnar?“ spurði hann.
„Flugurnar hafa lagt undir
sig flugnaveiðarann,“ svaraði
Winter.
URVAL tímaritsg-reina í samþjöppuðu formi.
Ritstjóri Gísli Ölafsson, afgreiðsla Kirkjustræti 4, Pósthólf 365. ■—■
Þeir, sem vilja gerast áskrifendur, eru beðnir að snúa sér til afgreiðsl-
unnar. Ætlast er til að hvert hefti verði greitt við móttöku. Á hinn
bóginn fylgja áskriftinni engar skuldbindingar um að kaupa tímaritið
fyrir fram ákveðinn tíma, en með því að gerast áskrifandi tryggið þér
yður að fá tímaritið sent til yðar undir eins og það kemur út. Upplagið
verður takmarkað og aðeins lítið sent til bóksala. Öruggasta leiðin
til að tryggja sér ÚRVAL, er því að gerast áskrifandi.