Úrval - 01.08.1945, Side 10
8
TJRVAL
ræðuna gat brugðist til beggja
vona. Ef hún var slæm, varð
svipur föður míns æ þyngri
eftir því sem á leið, svo að ber-
sýnilegt var, að hann átti erfitt
með að hafa hömlur á sér. Móðir
mín gaf honum auga öðru
hvoru, og ef útlitið varð mjög
ískyggilegt, sagði hún. „Clare,
þú mátt ekki.“ Faðir minn
hnussaði þá snöggt og ákaft.
Einu sinni gekk þó aðkomu-
prestur nokkur of langt í ræðu
sinni. í lok ræðunnar dró hann
upp mynd af fjármálamanni að
loknu dagsverki. Hann lýsti því,
hvernig þessi harðbrjósta mað-
ur sat umkringdur af höfuðbók-
um sínum, sem hann hafði ver-
ið að grúska í. Af tilviljun varð
honum litið út um gluggann á
guðsbirtu himinsins, og varð
honum þá allt í einu ljóst, að
peningar og höfuðbækur voru
fánýtt rusl. Og á þessari stundu,
meðan rökkrið breiddist yfir
borgina, beygði þessi mikli f jár-
málamaður höfuð sitt og
strengdi þess heit með tárin í
augunum að helga Hf sitt æðri
markmiðum.
„Bull“, hraut af vörum föð-
ur míns, svo ofsalega, að mað-
urinn í stúkunni fyrir framan
hrökk við, og ég heyrði, að
gamla frú Tillotson, í annarri
stúku fyrir aftan, flissaði.
Auk þess sem slík lýsing á
fjármálum var ósönn, var öll
túlkunin hættuleg í augum föð-
ur míns. Hver sem haldinn var
þeim órum, að peningar væru
„rusl“ hlaut að vera með lausa
skrúfu.
Þegar sálmar voru sungnir,
stóð faðir minn venjulega þögull
eins og örn í dúfnahóp og lét
aðra um að auðmýkja sig af
tilfinningasemi, sem hann tók
ekki þátt í.
Skýldu skjóllausu höfði mínu.
með skugganum af væng þínum.
Hvernig gat faðir minn sung-
ið slíkt? Höfuð hans var allt
annað en skjóllaust, honum
hefði aldrei dottið í hug að biðja
um skjól. Þar sem hann stóð
þarna, drambsamur og einbeitt-
ur, sá ég hann í anda ganga út
í geiminn með sama óbugandi
sjálfstæðinu — lítinn depil,
bjóðandi byrginn dauðanum
jafnt og óendanleikanum.
Faðir minn var vanur að
gefa einn dollar á samskota-
diskinn á hverjum sunnudegi.
Móðir mín blygðaðist sín fyrir
þessa litlu gjöf. En faðir minn
sagði, að einn dollar væri dá-
laglegur skildingur og móðir