Úrval - 01.08.1945, Blaðsíða 49
FRJÓVGUN í TILRAUNAGLASI
47
una. Ef þar er fyrir heilbrigt
og frjótt sæði, frjóvgast eggið.
Eftir fjóra til sex daga berst
eggið út úr legpípunni inn í
legið, og þar þroskast fóstrið.
Legpípan er þannig ekki aðeins
göng úr eggjakerfinu í legið,
heldur frjóvgunarstaður og
fyrsta „gróðrarstía“ hins frjóv-
gaða eggs. Ef hægt væri
að frjóvga egg einhverstaðar
annars staðar og koma því síð-
an fyrir í leginu, væru barns-
fæðingar hugsanlegar, þó að
legpípan væri ónýt.
Tilraunir á kanínum í þessa
átt hafa tekizt. Kanínuegg var
frjóvgað í tilraunaglasi, síðan
sett inn í leg kanínunnar, og
fæddist af því heilbrigður kan-
inuungi.
En það er ólíkt að eiga við
konuegg. Það tók sex ára þrot-
lausar tilraunir, átta hundruð
konuegg og biljónir sæðis-
fruma að koma í kring frjóvgun
í tilraunaglasi.
Það var á ókeypis kven-
spítala, sem þessar tilraunir
fóru fram, undir forustu dr.
John Rock og aðstoðarlæknis
hans, Miriam F. Menkin.
Fyrsta eggið, sem tókst að
frjóvga var úr þrjátíu og átta
ára gamallikonu,fjögurrabama
móður. Uppskurður var gerður
á henni, af heilsufarslegum
ástæðum, tíu dögum eftir tíðir.
Eggið, sem er eins lítið og
títuprjónsoddur og naumast
sýnilegt berum augurn, var
tekið úr eggbúinu í eggjakerf-
inu og skolað í upplausn, að
efnasamsetningu til eins líkri
því umhverfi sem eggið hafði
verið í og mögulegt var.
í tuttugu og fjórar stundir
var eggið látið liggja í blóð-
vatni konunnar sjálfrar ámeðan
það var að ná þroska. Síðan var
það látið í sæðisfrumublöndu,
sem í voru milljónir sæðisfruma.
Að því loknu var eggið sett í
blóðvatn úr annarri konu. í
smásjá sást, að nokkrar sæðis-
frumur höfðu borað sig í gegn
um yzta hýði eggsins; en bíða
varð enn um stund til þess að
sjá, hvort ein þeirra að minnsta
kosti, hefði komizt inn í eggið
og frjóvgað það.
Það var ekki fyrr en eftir
fjörutíu og hálfa klukkustund,
að greina mátti að frumuskipt-
ing hefði átt sér stað, en það
er fyrsta merki þess að vöxtur-
inn sé byrjaður. Eggið, sem áð-
ur var ein fruma, var nú orðið
að tveim. Allt virtist leika í
lyndi. En svo skeði ekki meir,