Úrval - 01.08.1945, Blaðsíða 52
50
TJRVAL.
bæði óþægilegur og hættulegur
sjúkdómur í litlum börnum.
Nær 85 af hundraði allra barna
í Bandaríkjunum fá hann yngri
en 7 ára og 50 af hundraði
yngri en tveggja ára. Mörg
börn deyja árlega og fjöldi
bama fær alls konar sjúkdóma
1 kjölfar kíhóstans.
1 september síðastliðnum til-
kynnti lyfja- og efnafræðiráð
ameríska læknasambandsins, að
eftir langa ramisókn hefði loks
tekizt að framleiða bóluefni,
sem kæmi í veg fyrir kíkhósta
eða gerði hann langtum vægari.
Áhrif þessa bóluefnis komu
greinilega í ljós fyrir nokkru á
íslandi, þar sem aðstæður eru
sérstaklega hentugar fyrir til-
raunir á þessu sviði. Til þess að
komast að raun um áhrif bólu-
efnis er mjög mikilvægt að fá
vissu um, hvort einstaklingur-
inn er móttækilegur fyrir sjúk-
dóminn, og ef hann er það,
hvort hann er þá alveg óvarinn
gegn honum. Á íslandi kemur
kíkhóstafaraldur venjulega með
nokkurra ára millibili (á sjö
ára fresti). Á milli þessara far-
aldra kemur varla fyrir einstakt
tilfelli. Þess vegna er ekkert af
yngstu börnunum (innan sjö
ára) ónæmt fyrir sjúkdóminum,
þegar nýr faraldur hefst, og eru
þau því öll í hættu.
Áður en síðasti kíkhóstafar-
faraldur hófst, bólusetti próf-
essor Niels Dungal um 5000
börn í Reykjavík. Næstum 30 af
himdraði fengu ekki kíkhósta,
um 50 af hundraði aðeins snert.
Mjög veik börn voru með fæsta
móti og dánartala einnig afar
lág. Af þeim börnum, sem ekki
voru bólusett, fengu tæpir 5
hundraðshlutar hann ekki, og
mörg barnanna urðu mjög veik.
Kíkhósti er sérstaklega
hættulegur börnum sex mánaða
og yngri sem eigi má bólu-
setja. Læknarnir Samuel Scar-
don og Philip Cohen í New
York tilkjmntu nýlega, að hægt
væri að vernda börn yngri en
sex mánaða gegn kíkhósta, með
því að bólusetja móðurina sex
sinnurn fyrir fæðingu með dá-
litlu millibili. Á fimm árum
fundu læknarnir ekkert tilfelli
sjúkdómsins í neinu barni, sem
á þennan hátt hafði hlotið
vernd gegn kíkhóstanum í móð-
urlífi.
Barnaveiki er nú orðin mjög
fátíður sjúkdómur, vegna þess
að bólusetning gegn henni er
almenn um nær allan heim. Nú
hefir dr. Louis Sauer, prófessor