Úrval - 01.08.1945, Page 53
NÝUNGAR 1 SÖTTVÖRNUM
61
við læknadeild háskóla eins í
norðvesturfylkjum Bandaríkj-
anna, komið fram með samsett
bóluefni, sem reyndist jafn vel
gegn kíkhósta og barnaveiki, og
mun það brátt verða notað sem
vamarlyf gegn báðum þessum
sjúkdómum.
Hið langþráða verndarlyf
gegn inflúenzu kom loks fram
í dagsljósið síðastliðið ár eftir
miklar rannsóknir þar að lút-
andi. Voru þegar gerðar stór-
felldar tilrauir með það á veg-
um ameríska hersins. Á meðan
inflúenzufaraldur gekk, voru
12550 menn á 13 mismunandi
stöðum bólusettir, — annar
helmingurinn með inflúenzu-
bóluefni og hinn með áhrifa-
lausri upplausn.
Þegar faraldurinn var liðinn
hjá, kom í ljós, að á sumum
stöðum fengu sex sinnum fleiri
ínflúenzu af þeim, sem ekki
voru bólusettir með bóluefni,
heldur en af þeim bólusettu, og
heildamiðurstaðan á öllum
stöðAmnum var einn á móti
tveimur. Þeir, sem bólusettir
voru, en fengu samt inflúenzu,
urðu mjög lítið veikir og hlutu
engin eftirköst.
Reynsla hersins á þessu sviði
leiðir í Ijós, að bólusetningu
skuli aðeins beita, ef nýr far-
aldur er í nánd. í þessu skyni
hafa verið settir á stofn svo
nefndir „inflúenzu-verðir“ víðs-
vegar innan hersins. Um ieið og
fyrsti vottur inflúenzu kemur í
ljós, eru allir hermenn þegar
bólusettir með þessu nýja bólu-
efni, sem herinn hefir yfir að
ráða í ríkum rnæli.
Eftir styrjöldina munu slíkir
„verðir“ vera settir á stofn hjá
heilum þjóðum, og skólar, fyrir-
tæki og heilsuverndarstöðvar
munu annast útbreiðslu bólu-
efnisins.
Malaría, sem einu sinni var
hræðilegasta landfarsóttin, sem
geisaði lun Bandaríkin, er nú
orðin fátíður sjúkdómur þar.
Síðastliðið ár komu aðeins fyrir
tvö tilfelli hjá 10.000 hermönn-
um í heimahernum ameríska.
Auk hinna venjulegu aðferða til
að útrýma mosquito-flugunni,
sem ber malaríu bakteriuna,
notaði herinn hið nýja frábæra
skordýraeitur DDT. DDT hefir
einnig verið notað með ágætum
árangri í baráttunni við skor-
dýrasæg Kyrrahafseyjanna og
taugaveiki á ítalíu. (Sbr „DDT
hið banvæna skordýraeitur," 4.
hefti Úrvals f. á.).
Fleiri ráð eru notuð til útrým-