Úrval - 01.08.1945, Blaðsíða 78
76
tTRVAL,
erfitt er að útrýma, og eru Gyð-
ingaofsóknirnar aðeins eitt
dæmi um slxkt-
Kynþáttaófrelsi þjónar ekki
alltaf sama tilgangi. Þar sem
negrum er ekki veitt full borg-
araleg réttindi, er hægt um vik
að nota þá sem ódýran vinnu-
kraft. Það er erfitt fyrir þá að
bindast samtökum til að bæta
lífskjör sín, því að þeir hafa
engin pólitísk réttindi; og erf-
iðleikarnir verða enn þá meiri
fyrir það, að þeir hvítir menn
sem hafa raunverulega sömu
hagsmuna að gæta, hafa verið
aldir upp við að líta á negrana
sem óæðri menn, er ekki sé
hægt að umgangast sem jafn-
ingja. Það er því í þágu vinnu-
veitenda í þeim ríkjum, sem
negrar eru í að viðhalda póli-
tísku, efnalegu og félagslegu
ófrelsi negranna. I sumum ný-
lendum Breta hafa hvítir laun-
þegar fríðindi, sem gera það að
verkum að þeir eru einnig á
móti bættum kjörum innfæddra
manna. Þar sem kynþátta-
ófrelsið hefir verið afnumið,
eins og í Jamaica, hefir það oft
verið fyrir harðsnúna baráttu
blökkumannanna sjálfra, án
nokkurrar hjálpar frá hvítum
mönnum.
Ni'öurlagsorð.
Kynþáttaófrelsi er andstætt
siðgæðishugsjónum flestra sið-
menntaðra þjóða, og þær eru í
beinni andstöðu við kenningu
kristindómsins um bræðralag
mannkynsins. „Hér er ekki
Gyðingur né grískur, hér er
ekki þræll né frjáls maður, hér
er ekki karl né kona, því að þér
eruð allir einn maður í sam-
félaginu við Krist Jesúm.“ Það
er hins vegar megintilgangur
þessarar greinar að sýna fram á,
að þótt kynþáttakenningar séu
oft fram bornar undir vísinda-
legu yfirskyni, veita raxmvís-
indi nútímans þeim raunveru-
lega enga stoð, og þær sann-
anir sem við höfum fyrir mis-
munandi manngerðum séu al-
gerlega ósamrýmanlegar hug-
myndinni um aðgreinda mann-
flokka með föstum sérkenn-
urn.
Það er einnig nauðsynlegt að
henda á hvað það er, sem ekki
verður vísindalega sannað í
þessu efni. Þegar vér segjum,
að ekki séu til neinar sannanir
fyrir því, að einhver mannflokk-
ur sé í ákveðnu tilliti óæðri öðr-
um mannflokki, er ekki þar
með fullyrt, að meðalhæfileikar
allra mannflokka séu þeir sömu.