Úrval - 01.08.1945, Page 102
YORKSHIREMAÐURINN FLJÚGANDI
QAM SMALL sannfærðist ekki
um það smárn saman að
hann gæti flogið — það kom
yfir hann allt í einu. Hann hafði
farið með Mully um kvöldið
niður í Los Angeles til þess að
hlusta á systur Minnie Tekel
Upharsin Smith á samkomu í
Musterinu. Sam hafði ekki
langað til að fara, en áður en
lauk varð hann að viðurkenna,
að þetta hefði reyndar ekki ver-
ið svo vitlaust, og Mully var frá
sér numin af hrifningu.
Eftir fyrsta sálminn, bað
systir Minnie allt kalifornískt
fólk að standa upp og taka í
hendur hinna, er viðstaddir
voru, og segja: ,,Guð blessi þig,
bróðir eða systir,“ eftir því sem
við átti.
Sam varð dálítið hvumsa,
þegar bráðókunnugt fólk fór að
taka í höndina á honum, en
Mully þótti gaman að því. Þeg-
ar systir Minnie bað allt útlent
fólk að standa upp og segja frá,
hvaðan það væri, fór Mully að
leggja að Sam að gera það. En
Sam vildi ekkert við það eiga.
Fólk fór að hrópa, að það væri
frá Þýzkalandi, ítalíu, Kína og
Hawaii; það var meira að segja
einn náungi þarna frá Indlandi.
Loks stóðst Mully ekki mátið.
Hún hnýtti hattbandinu þétt
undir hökuna, reis á fætur og
kallaði eins hátt og hún gat:
„Herra og frú Sammywell
Small, Powki’thorpe Brig,
Huddersfield, Yorksha, Enge-
land“.
Svo settist hún niður, kafrjóð
í framan, en allir viðstaddir
klöppuðu. Kona frá Ioway, sem
sat næst henni, gaf sig á tal við
hana, og Mully lýsti yfir því, að
Kalifornía væri yndislegasti og
vinarlegasti staðurinn, sem
þau hjónin hefðu fyrirhitt á
ferð sinni umhverfis jörðina.
Sam reyndi að láta sér fátt
um finnast, en jafnvel hann fór
að leggja við hlustirnar, þegar
systir Minnie hóf ræou sína.
Ræðan bar titilinn: „Trúin
flytur fjöll“. Allt byggist á
trúnni, sagði systir Minnie, og
hún var svo trúuð, að hún viss'i
að færu þessi 5000 systkini nið-