Úrval - 01.08.1945, Qupperneq 111
YORKSHIREMAÐURINN FLJÚGANÐI
109
áður, og það fór að líta út fyrir,
að hún mundi eiga framtíð fyrir
sér á kvikmyndasviðinu. Það
eina, sem spillti fyrir henni, að
því er hún sagði sjálf, var heim-
ilið.
„Þetta hús,“ sagði hún, „er
svo lítið — og nágrennið! Við
ættum að búa þar sem ég gæti
haldið veizlur, hitt áhrifamikið
fólk og náð í sambönd."
Það varð úr, að Mully og
Lavinia fengu stórt og fallegt
hús. Það stóð á fögrum stað og
í garðinurn voru allskonar tré
og einnig gosbrunnur. Þegar
þær höfðu komið sér fyrir, bauð
Lavinia ýmsu fyrirfólki heim.
Sam hafði fremur lítið hlut-
verk með höndum í veizlunni,
þar til talið barst af hendingu
að flugmálum. Flutningaflug-
vél hafði hrapað í San Fran-
ciscoflóa og allir viðstaddir
höfðu skýringar á reiðum hönd-
um.
„Nei, þetta er ekki rétt hjá
ykkur,“ skaut Sam inn í.
„Sennilega hefir flugvélin hrap-
að af því, að loftið var hvikult.“
„Var hvað?“, spurði stúlka
nokkur, með hvellri röddu.
„Það var hvikult,“ sagði Sam.
Allir hættu að tala, og Sam fór
að útskýra þetta nánar. ,,Ég hefi
fundið upp þetta orð, en ég skal
útskýra það betur fyrir ykkur.
Stundum er loftið eins gott og
slétt eins og maður getur óskað
sér...“
„Pabbi,“ skaut Lavinia inn í,
viltu ekki setja upp borðtennis-
netið?“
„Rétt strax,“ sagði Sam.
„Stundum er það aftur á móti
í eintómum hnökrum. Ég kalla
það hvikult. Sjáið nú til, við
skulum segja að ég sé flugvél."
Hann baðaði út höndunum. öll-
um var skemmt, og Sam var
óneitanlega dálítið skringileg-
ur, þar sem hann stóð þarna
með útrétta armana.
Þegar Mully sá gestina brosa,
var henni allri lokið. Hún hnippti
svo duglega í Sam, að það lá við
að hann rifbrotnaði. „Það er
kominn tími til að setja upp
borðtennisnetið væni,“ sagði
hún með áherzlu.
Sam setti upp netið, og gest-
irnir fóru að slá boltann á milli
sín. Sam horfði á þá um stund,
en ráfaði svo einn um húsið.
Hann var fremur niðurdreginn,
þegar hár, myndarlegur piltur
vatt sér allt í einu að honum.
„Herra Small,“ sagði hann, „ég
heiti Harry Hanks. Ég fékk
áhuga á því sem þér voruð að