Úrval - 01.08.1945, Síða 116
114
TJRVAL<
eins 2 metrar eða eitthvað svo-
leiðis. Við gætum grætt lag-
legan skilding á þessu, lasm“
Dick stakk upp á því, að
Sam færi að æfa íþróttir. „Það
er engin skaði skeður, þó að
við svælum nokkrar kringlóttar
út úr þessum bannsettum
Ameríkönum," sagði hann.
„Þeir eru búnir að vinna
Olympíuleikina svo oft, að það
er kominn tími til að almenni-
legur Breti slái þá út, og næli
sér í nokkur pund um leið“.
„Ojá, það er ekkert ljótt við
það að sigra í heiðarlegri
keppni,“ sagði Sam.
Sam fór að æfa sig. Dick
gerðist þjálfari hans, lét hann
hlaupa, og stökkva hástökk og
langstökk. Hann lét hann éta
hrá egg og drekka Sherry, og
nuddaði hann.
„Jæja lasm,“ sagði hann dag
nokkurn. „ég er búinn að þjálfa
þig eins og hægt er. Ég hefi
gert það sem mér bar. Láttu nú
ekki þitt eftir liggja“.
Þeir fóru út á íþróttavöllinn
og Dick veðjaði á Sam. Þegar
hann kom aftur inn í búnings-
klefann, ljómaði hann allur af
ánægju. „Ég hefi veðjað fimm
dollurum á móti einum á þig,“
sagði hann.
Eftir að Dick hafði hjálpað
Sam að klæða sig í stökkbún-
inginn, fylgdi hann honum út
á völlinn. „Vertu ekki smeyk-
ur,“ sagði hann, „ég er viss um
að þú vinnur.“
„Ef þú heldur það, er mér
borgið,“ sagði Sam.
Fyrst var keppt í hástökki.
Dick lét það eiga sig, þar til
komið var upp í 1,75 metra. Þá
færði hann Sam úr sloppnum.
„Þetta getur þú auðveldlega,“
sagði hann.
Sam var dálítið taugaóstyrk-
ur, en traust Dicks styrkti hann,
og hann hljóp að slánni og
stökk yfir. Sláin var hækkuð
um 2,5 centimetra. Annar kepp-
endanna gat ekki stokkið yfir.
Sam og hinn, sem eftir var,
stukku, og sláin var alltaf að
hækka, unz allt í einu glumdi í
hátalaramun: „Olympíumet í
hástökki með atrennu. Sam
Small frá Stóra-Bretlandi stekk-
ur nú“.
Sam tók tilhlaup og flaug
yfir: Áhorfendurnir klöppuðu.
Hinn keppandinn stökk líka
yfir: Þegar tilkynnt var í há-
talaranum að sláin hefði verið
hækkuð í nýtt heimsmet, þustu
Ijósmyndarar á vettvang, og
Sam sveif yfir þó nokkuð fyrir