Úrval - 01.08.1945, Page 127
YORKSHIREMAÐURINN FLJÚGANDI
125
Lögregluþjónn kallaði til
Sams og bað hann að koma nið-
ur, en Sam var búinn að missa
virðinguna fyrir bláa lögreglu-
búningnum. „Nei, karlinn,"
sagði hann, „ef þú klifrar hing-
að upp, þá flýg ég bara yfir á
aðra byggingu, og þú verður að
klifra aftur upp á hana. Eina
manneskjan, sem ég vil tala við,
er hún Mully mín. Sæktu
hana Mully, ég skal tala við
hana.“
Sam færði sig upp á turn-
spíruna, og þar sat hann
klukkutímum saman, unz kom-
ið var undir kvöld. Loks heyrð-
ist hrópað niðri, og Sam sá
grilla í hatt Mullyar á svölum
fyrir neðan. Hann sveif niður
til þess að hjálpa henni, unz þau
voru stödd á múrbrún ein út af
fyrir sig.
Mully starði á hann, og mun-
aði íitlu að hún færi að gráta.
„Heyrðu Sam,“ sagði hún,
„þama hefir þú setið á skyrt-
unni í alla nótt eins og spörfugl.
Þú hlýtur að hafa dauðkvefast.“
„Mully,“ bað Sam, „byrjaðu
nú ekki að rífast í mér. Hjálp-
aðu mér heldur út úr þessarri
klípu, og ég skal aldrei frarnar
lyfta fótunum frá jörðinni.
Segðu þessum lögregluþjóna-
skröttum að mig langi bara að
komast niður og fara heim til
Yorkshire."
„Nei, væni,“ sagði Mully, „þú
verður að sitja þar sem þú ert
kominn. Þú hefir komið borg-
inni á annan endann. Fólk, sem
hefir verið að glápa á þig, hefir
farizt tugum saman í umferða-
slysum. Menn er farnir að
stefna þér fyrir skemmdarverk
og ég veit ekki hvað.“
„Hvert í logandi," stundi Sam.
„Forsetinn hefir skipað að
loka kauphöllunum. Hann hefir
kallað saman þingið, til þess að
samþykkja nýja fjárveitingu til
varnarráðstafana gegn fljúg-
andi mönnum. I stuttu máli,
Sam Small, þú hefir komið öllu
á ringulreið í heiminum."
„Mig langaði bara að vera
kominn heim til Yorkshire,
Mully, með ölkrús fyrir framan
mig og nokkra kunningja til að
spjalla við á kvöldin. Og nú er
ég kominn í laglega klípu!“
Sam þagði stundarkorn. „Jæja
Mully,“ sagði hann svo. „Þetta
er rnér að kenna. Farðu nú nið-
ur, náðu þér í lest til Kaliforn-
íu og vertu hjá Laviniu. Ég
skal hugsa um mig.“
„Nei,“ sagði Mully, gröm.
„Þetta er ekki síður mér að