Úrval - 01.08.1945, Page 130
128
ÚRVAL
virðist fíngerða húð utan um
trefjamar, svo að þær þola
ekki aðeins núning heldur eru
einnig vatnsheldar og þola áhrif
fitu, olíu og vínanda. Samt er
pappírinn mjúkur og sveigjan-
legur. Skjala- eða prentpappír
sem þannig hefir verið með-
höndlaður, er mjög svipaður að
útliti venjulegum pappír sömu
tegundar.
Það má dífa þessum pappír í
vatn, og troða síðan á honum,
án þess hann skemmist, og jafn-
vel nota hann til að sjóða í vatn
yfir sprittlampa.
Hann er ágætur í bækur, sem
prentaoar eru með blindraletri,
því að upphleyptir stafir á hon-
um endast miklu lengur en á
venjulegum pappír
Það er augljóst, að þennan
pappír má nota til margra ann-
ara hluta. Það ætti að vera hægt
að búa til úr honum lítil tjöld,
sem endast mundu eina viku eða
svo; landakort og sjókort sem
hægt er að skoða í rigningu;
umbúðir utan um frystan mat;
poka fyrir þurr efni og sölt;
regnkápur og regnslá; saman-
brotin eldunartæki sem nota má
við útilegur; og auglýsinga-
spjöld til notkunar utanhúss.
Þannig gæti þessi pappír í
mörgum tilfellum komið í stað-
inn fyrir dúka, gúmmí „gutta
percha,“ asbestkork og leður.
Mikilvægasti eiginleiki papp-
írsins er, að hægt er að brjóta
hann saman án þess að hann
brotni eða spryngi. Tilraunir
hafa sýnt að hann er helmingi
sterkari en venjulegur pappír
af sömu þykkt og gæðum. Suðu
þolir hann vel án þess að glata
í nokkru eiginleikum sínum, og
það er hægt að gljápressa hann,
svo að hann verði eins og bezti
myndapappír.
URVAL timaritsgreina í samþjöppuðu formi.
Ritstjóri Gísli Ólafsson, afgreiðsla Tjarnargötu 4, Pósthólf 365. —
Þeir, sem vilja gerast áskrifendur, eru beðnir að snúa sér til afgreiðsl-
unnar. Ætlazt er til, að hvert hefti sé greitt við móttöku. Á hinn
bóginn fylgja áskriftinni engar skuldbindingar um að kaupa tímaritið
fyrirfram ákveðinn tíma, en með því að gerast áskrifandi tryggið þér
yður að fá tímaritið sent til yðar undir eins og það kemur út. Úrval
er sent til allra bóksala á landinu og getur hver og einn gerzt áskrif-
andi hjá næsta bóksala.
ÚTGEFANDI: STEINDÓRSPREN T H.F.