Úrval - 01.02.1948, Blaðsíða 21
RÓMANTlSK ÁST í RÉTTU LJÓSI
19
að sé réttur hvers einasta góðs
Bandaríkjaborgara. Það er því
ekkert undrunarefni, þótt hann
(eða hún) verði óánægð út af
smámunum og kasti brott því,
sem unnizt hefur, til þess að
geta keppt eftir hinu ófáanlega.
Enginn hefur sagt þessum
veslmgs ungmennum, að það sé
ófáanlegt. Það hefur verið
skrökvað að þeim.
Það er kominn tími til að
skýra þeim frá nokkrum óþægi-
legum staðreyndum varðandi
ástina.
*
Sumar af hinum einföldustu
blekkingum í sambandi við ást-
ina, eru erfiðastar viðfangs.
Tökum til dæmis þá kenningu,
að forsjónin hafi fyrirhugað
hverjum einstaklingi einn ákveð-
inn maka og engan annan.
Manni gæti dottið í hug, að for-
sjónin, sem á að hafa undirbúið
þetta svona vandlega, myndi sjá
til þess, að sérhver einstakling-
ur fyndi hinn ákveðna maka
sinn. En þess eru f jölmörg dæmi
í lífinu, að svo er ekki. Ef við
föliumst á þessa forsjónarkenn-
ingu, þá hljótum við að álykta,
að forsjónin sé annaðhvort á-
kaflega klaufsk í að koma rétt-
um aðilum saman eða hún hafi
gaman af að horfa á mannanna
börn leika þenna bjánalega felu-
leik.
Það er ekki lengur tízka í bók-
menntum að halda á iofti þess-
ari kenningu um makaval for-
sjónarinnar, enda var hún farin
að láta á sjá. Ef maður spyrði
unga elskendur, hvort þau tryðu
því, að guðieg forsjón hefði
stefnt þeim saman, svo að þau
yrðu aðnjótandi hamingjunnar,
þá myndu þau vafalaust svara
neitandi, það færi í bága við
heiibrigða skynsemi að trua
siíku. En undir niðri myndi þeim
þó finnast þetta. Enda þótt fólk
vilji ekki játa kenninguna um
makavalið opinberlega, er það
þó svo, að flestum ungum elsk-
endum finnst sem þeim hafi ver-
ið stefnt saman af ásettu ráði,
og ef þetta eða hitt hefði ekki
farið svo og svo, þá hefðu þau
sennilega aldrei hitzt eða að
minnsta kosti ekki fengið tæki-
færi til þess að uppgötva ást
sína. Ef ég hefði ekki farið til
Cape Cod í staðinn fyrir að fara
til Gloucester, hugsar Emily
með sjálfri sér, þá hefði ég aldrei
hitt Ralph. Ef ég hefði ekki
gleymt hattinum mínum og far-
ið að sækja hann, segir Ralph
við sjálfan sig, þá hefði ég ekki
3*