Úrval - 01.02.1948, Síða 30
28
tTRVALi
reynd, að mörguna þykir hress-
ing í því að reykja sígarettu.
Þegar eiturefnin koma inn í lík-
amann, gefa nýrnahetturnar frá
sér adrenalin. Af því leiðir, að
meiri sykur skilst úr lifrinni í
blóðið en ella. Það dregur úr
meltingarstarfseminni og blóð-
sóknin til meltingarfæranna
minnkar. Hjartað og lungun
starfa örar. Þetta getur valdið
því, að mönnum finnist þeir
hressast, en það sem skeður í
raun og veru er það, að líkam-
inn er að reyna að losna við
eitrið eins fljótt og verða má.
Það er alkunnugt, að æðarn-
ar dragast saman, ef menn anda
að sér reyknum. Hinn sjaldgæfi,
en hræðilegi sjúkdómur throm-
bo-angiitis, stafar beinlínis af
sígarettureykingum. 1 þessum
sjúkdómi stöðvast blóðrásin í
einstökum æðum á höndum eða
fótum og verður úr drep. Sá,
sem eykur adrenalinframleiðslu
líkamans með reykingum, á það
á hættu, að blóðið storkni eða
hlaupi í kekki fremur en ella.
Hinar alkunnu tilraunir dr.
Raymonds Pearl hafa sannað,
að þeir sem reykja óhóflega,
stytta líf sitt. Og allir vita, að
sérfræðingar í hjartasjúkdóm-
um ráðleggja sjúklingum sínum
að hætta reykingum. En það er
dr. McCormick, sem hefur heið-
urinn af því, að hafa bent á
sígarettuna sem óvin þjóðfélags-
ins nr. 1, og það með vísinda-
legum rökstuðningi.
í Norðurálfu einni munu um
300 þúsund manns deyja úr
hjartaslagi í ár. Mikið af þessu
fólki mun deyja skyndilega úr
blóðtappa í hjartaæðum í blóma
lífs síns. Þið þurfið ekki annað
en að líta á hagskýrslurnar, sem
sýna, hvernig þessi sjúkdómur
hefur færzt í aukana samhliða
auknum reykingum.
■k ★ -k
MannseðUð.
,,í>að eru tvær tegundir manna, sem aldrei verður neitt úr,“
sagði Cyrus H. K. Curtis, hinn kunni bókaútgefandi, eitt sinn.
,,Það eru þeir, sem aldrei geta gert það, sem þeim er sagt, og
hinir, sem aldrei geta gert annað en það, sem þeim er sagt.“
— Quote.