Úrval - 01.02.1948, Side 36
34
ÚRVAL
hefðu gert tilraun til að setja
lið á land á strönd Englands,
en hefðu verið hraktir burtu og
beðið mikið tjón.
Mánuði seinna hafði „New
York Sun“ fengið nákvæmari
fréttir: „Fram úr þokunni og
mistrinu læddust flatbotna
prammar í hundraðatali, og í
hverjum þeirra voru 200 Þjóð-
verjar með alvæpni. Meðan
enski flugherinn barðist við
þýzka flugherinn, skutu brezk
strandvirki á prammana. Það
varð ægilegt blóðbað .. Pramm-
amir sukku af völdum skot-
hríðarinnar frá strandvirkjun-
um jafnóðum og þeir komu í
ljós. Samtímis komu brezkar
flotadeildir aftan að þeim og
rufu samband þeirra við strönd
Frakklands. En nú var sólin
komin upp, og þokunni, sem
skýlt hafði prömmunum, létti.
Þegar ljóst varð, að innrásar-
herinn næði ekki ströndinni,
drógu flotadeildimar sig í hlé,
og Ermarsund var allt stráð lík-
um og rekaldi."
í desember komust nýjar
fréttir á kreik. Maður, sem kom
til Ameríku frá Frakklandi,
sagði að sjúkrahúsin í' París
væru full af Þjóðverjum með
hræðileg brunasár. I þessum
orðrómi um misheppnaða inn-
rás var þess getið, að Englend-
ingar hefðu lagt þúsundum olíu-
geyma við akkeri rétt undir
yfirborðinu; síðan voru þeir
sprengdir og kveikt í olíunni
með eldsprengjum. Aðrar sög-
ur vom á þá leið, að olíunni
hefði verið hellt í sjóinn og síð-
an kveikt í henni með eldkúlum.
1 opinberri tilkjmningu, sem
franska upplýsingaþjónustan
gaf út árið eftir, segir: „Þrjá-
tíu þúsund Þjóðverjar drakkn-
uðu við tilraun til að fara í skip
í desember í fyrra.“ Brezk blöð
voru beðin um að birta ekki
þessa tilkynningu.
Engin opinber skýrsla var
gefin, og jafnvel tveim áram
síðar kaus stjómin enn að halda
öllu leyndu. Vyvyan Adams
majór spurði forsætisráðherr-
ann í neðri málstofunni í júlí
1943, hvort óvinirnir hefðu gert
nokkra tilraun til innrásar í
þessar eyjar sumarið eða haust-
ið 1940, og ef svo væri, hvort
hann gæti þá skýrt frá því, í
hve stórum stíl tilraunin hefði
verið.
Hann fékk loðin svör frá
Attlee, sem þá var varaforsæt-
isráðherra. „Með því að starfs-