Úrval - 01.02.1948, Síða 38
36
ÚRVAL
sprengjum og skutu á okkur
með vélbyssum. Helvíti getur
ekki verið verra.“
I maí 1945 hafði annar blaða-
maður hitt mann, sem horfði á
innrásartilraunina laugardags-
kvöld eitt í september 1940 frá
ströndinni við Sussex rétt hjá
Bognor. Hann gaf myndauðuga
lýsingu á skothríð strandvirkj-
anna á þýzka innrásarpramma
á meðan enskar sprengjuflug-
vélar sveimuðu yfir þeim. Hann
sagðist hafa séð hermannalík-
um skola á land svo hundruðum
skipti.
Og blaðamaðurinn bætti við
frá eigin brjósti: „Þrátt fyrir
þann steinvegg, sem brezk her-
yfirvöld eru umlukt, tókst mér
að fá vissu fyrir því, að brezka
herstjórnin taldi, að innrásar-
æfing, sem Þjóðverjar héldu,
væri raunveruleg innrásartil-
raun, og gaf öllum deildum land-
varnanna skipun um að vera
viðbúnar orustu.“
Ekkert olli mér eins mikilli
fyrirhöfn öll stríðsárin og þessi
fullyrðing um þýzka innrás, sem
brotin hefði verið á bak
aftur með því að kveikja í olíu
á sjónum og steikja þar 30 þús-
und Þjóðverja lifandi. Erfiðleik-
arnir byrjuðu í september 1940,
þegar öllum kirkjuklukkum
landsins var hringt til merkis
um að innrás væri hafin og
heimavarnarliðið var kvatt til
vopna. Ritskoðunin fékk skila-
boð um, að það væri leyfilegt
að birta frétt um það, að klukk-
unum hefði verið hringt, „en
ekki annað en það, sem bent
gæti til, að þetta hefði verið
gabb eða mistök. Engin opin-
ber tilkynning verður gefin út.“
Eigi að síður er það stað-
reynd, að Þjóðverjar höfðu við-
búnað til innrásar í Stóra Bret-
land, en gerðu aldrei verulega
tilraun til að framkvæma hana.
Það var ekkert satt í orðrómin-
um um þýska innrásartilraun,
sem hefði verið hrundið og
30 000 Þjóðverjar brenndir.
Samt var þetta þrálátasti orð-
rómurinn í stríðinu. Aftur og
aftur heyrði ég hann í mismun-
andi útgáfum.
Nú er það ekki hlutverk rit-
skoðunarinnar að úrskurða
hvað er satt og hvað ósatt í til-
kynningum; hlutverk hennar
er að sjá um, að óvinirnir fái
ekki mikilvægar upplýsingar.
Ég rakst oft á ýmislegt, sem
var ekki rétt. Ég benti þá blað-
inu, sem flutti fregnina, á það,