Úrval - 01.02.1948, Síða 48
46
ÚRVAL
Heildartölur rannsóknanna
sýna, að 27—37% eiginmanna í
hverjum fimm ára aldursflokki
viðurkenndu að hafa nokkra
reynslu í framhjátökum. Ef
tekið er tillit til þeirra, sem
ætla má, að hafi ekki þorað að
viðurkenna ótrúmennsku sína,
álítur dr. Kinsey, að „óhætt
muni að ætla, að um helmingur
allra eiginmanna hafi mök við
aðrar konur en eiginkonur sín-
ar einhvern tíma á hjónabands-
árunum.“
„Flestir karlmenn,“ segir dr.
Kinsey, „halda ekki framhjá að
staðaldri, og ekki alltaf með
sama kvenmanninum. Þeir eiga
mök við einn kvenmann í tvö
eða þrjú skipti, síðan annan
kvenmann í nokkur skipti, og
svo geta liðið nokkrir mánuðir
eða jafnvel eitt eða tvö ár, en
þá skeður það nokkrum sinnum
á hverju kvöldi í viku eða jafn-
vel mánuð, og hættir svo alger-
lega aftur.“
Flestar framhjátökur eiga sér
stað með lagskonum, aðeins 8—
15% með vændiskonum.
Framhjátökur eru tíðari í
bæjum en sveitum. Áhrif ótrú-
mennskunnar á hjónaböndin
virðast líka mismunandi hjá
hinum ýmsu stéttum. „Nánari
upplýsinga er þörf,“ segir dr.
Kinsey, „ef meta á félagsleg á-
hrif ótrúmennsku, en eftirfar-
andi ,,brot“ gefa nokkra bend-
ingu:
„Á meðal láglaunamanna, þar
sem framhjátökur eru tíðastar,
er algengt, að eiginkonurnar
geri allt eins ráð fyrir að menn
þeirra „taki framhjá," og sum-
ar þeirra viðurkenna hrein-
skilnislega, að þær láti sig það
ekki miklu skipta, ef þær viti
ekki um tilfellin á meðan á þeim
stendur. Eigi að síður er ótrú-
mennskan algengasta orsök
ósamlyndis meðal hjóna af þess-
um stéttum.
Millistéttafólk þolir síður
framhjátökur. Þó að þær valdi
ef til vill ekki eins miklum
deilum og rifrildi milli hjóna,
valda þær oftar skilnaði.
Framhjátökur meðal há-
launamanna og menntamanna
valda miklu sjaldnar erfiðleik-
um, því að þær eru venjulega
öllum ókunnar nema þeim tveim
persónum, sem hlut eiga að
máli.“
— Science News Letter.
Glæpamenn gerðir
að nýjmn mönnum.
Luigi gekk meðal samfanga