Úrval - 01.02.1948, Page 49
1 SUTTU MÁLI
47
sinna undir nafninu „apafés.“
Og auknefnið var ekki nýtt.
Hann hafði fengið það strax í
barnaskóla, þegar einn af skóla-
félögum hans kvað upp úr með,
að andlitið á honum væri eins
og á apa, og mátti það til sanns
vegar færa, því að hann var
flatnefjaður og munnvíður.
Nafnið loddi við hann upp frá
því og var síðan skráð í margar
lögregluskýrslur og fanga-bæk-
ur. Félagar hans héldu, að hann
væri hreykinn, af nafninu, því
að hann lét sér oft nægja að
skrifa „apafés“ undir bréf sín.
Þeir urðu því hissa, þegar þeir
fréttu, að Luigi hefði sótt um til
fangalæknisins, að gerð yrði á
sér andlitsbreyting með skurð-
aðgerð (plastic surgery).
Það var meira en venjuleg
andlitsfegrun, í staðinn fyrir
flata nefið fékk hann hátt og
beint nef, og apasvipurinn á
andlitinu hvarf gersamlega.
Afstaða Luigi til lífsins gjör-
breyttist við þetta, jafnvel áð-
ur en hann losnaði úr fangels-
inu. Hann varð glaðlyndur og
áhugasamur við að fullnuma
sig í iðngrein, sem hann fékk að
læra í fangelsinu. Þegar hann
iosnaði, fékk hann strax
atvinnu, og hefur haldið henni
síðan — í meira en fimm ár.
Andlitsbreyting hafði breytt
glæpamanni í löghlýðinn borg-
ara.
J. F. Pick, skurðlæknir við
ríkisfangelsið í Illinois í Banda-
ríkjunum, getur nefnt mörg
dæmi þessu lík. Á tíu árum hef-
ur hann gert breytingaraðgerð
á 376 föngum. Aðeins fjórir
þeirra hafa aftur komizt undir
mannahendur, eða 1,07%, en
meðaltal fanga, sem aftur ger-
ast brotlegir, er um 20%.
Dr. Pick hefur ekki aðeins
framkvæmt andlitsbreytingar,
heldur einnig lagað ýmsa aðra
líkamlega ágalla. Stundum hefur
hann getað læknað menn af
heltu; einn fanginn var með tvo
þumalfingur á vinstri hendi,
aðrir voru með æxli eða útvexti
hér og þar á líkamanum. Öll
líkamleg sérkenni, sem gera
fangana frábrugðna öðru fólki,
telur dr. Pick ástæðu til að laga.
I skýrslu sinni til Interna-
tional College of Surgeons seg-
ir hann, að flestar breytingar
hafi hann gert á nefi. Næst
koma hörundsaðgerðir, sem
flestar miða að því að eyða ör-
um. Þar næst eyru, og svo
munnur, háls, fótleggir, fætur,
handleggir og hendur.