Úrval - 01.02.1948, Page 74
72
ÚRVAL
skóp nýtt líf í heiminn. Læri-
sveinarnir gerðu hana þegar í
upphafi að þungamiðju kenn-
inga sinna, og þeir gerðu það í
Jerúsalem, þar sem andstæðing-
ar þeirra hefðu getað komið
fram með gagnrök og afsannað
hana, ef það hefði verið mögu-
legt.
Voru lærisveinarnir að halda
fram vísvitandi lygi? Geta lyg-
arar breytt heiminum og haft
áhrif á gang mannlegrar sögu
um aldaraðir, eins og kristin-
dómurinn hefur gert? Ég held
ekki. Voru lærisveinarnir haldn-
ir ósjálfráðum blekkingum
og ofsjónum? Ég get ekki
trúað því, og ástæðan er
hin sama og áður. Með til-
liti til sannananna er skynsam-
legast að álíta, að þeir hafi sagt
sannleikann. Eðlilega var kenn-
ing þeirra um það, hvernig upp-
risan hafi skeð, mótuð af hug-
myndum þeim, sem þeir gerðu
sér mn efnisheiminn. Þú skýrir
hana sennilega á annan hátt, í
samræmi við þínar hugmyndir
um eðli efnisheimsins; ef til vill
eru það betri skýringar, ef til
vill ekki. Það er staðreynd, en
ekki skýring, sem er mikilvæg
- sú staðreynd að Kristur getur
gert það sama fyrir okkur nú í
dag og hann gerði fyrir Pétur,
Jóhannes, Pál og hina.
Sumum vex í augum ósam-
ræmið í frásögnum guðspjall-
anna fjögurra. Þeir ættu að
gera eftirfarandi tilraun: Þeir
ættu að biðja fjóra vini
sína að vera viðstadda knatt-
spyrnukappleik, og skrifa síðan
frásögn um leikinn daginn eftir,
án þess að líta í dagblöðin. Ég
staðhæfi, að það yrði meira
ósamræmi 1 frásögnum þeirra
en í guðspjöllunum, sem voru
færð í letur mörgum árum eftir
atburðina. Aðrir eiga erfitt með
að trúa á kraftaverkin, sem
skýrt er frá í Nýja testament-
inu. Ég hef ekki miklar áhyggj-
ur af þeim. Það getur verið
fljótfærnislegt að trúa sumum
þeirra, af því sannanirnar eru
fremur veikar; en það er ekki
óskynsamlegt, af því að nokkrar
sannanir eru fyrir hendi og
engin þessara sannana verður
hrakin vísindalega, ef út í það
væri farið. Eftirfarandi setning
er höfð eftir Bernard Shaw:
,,Fólk nú á dögum trúir hvaða
fjarstæðu, sem er, ef hún er
kennd við vísindin, en það trúir
engu, sem bendlað er við trúar-
brögð.“
Þekktur sagnf ræðingur nýlát-