Úrval - 01.02.1948, Page 84
82
ÚRVAL
ir eins og dýr, auka kyn sitt
eins og dýr og njóta sömu með-
ferðar og dýr? Ég get ekki
svarað þessari spurningu.
Ég trúi þessu öllu af því
að mér virðist það vera
skynsamlegt. Þau mótmæli
munu koma fram, að miklu gáf-
aðri menn en ég hafi ekki sann-
færzt af þessum rökum, og mér
mun verða núið því um nasir,
að niðurstöður mínar byggist á
því einu, að ég óski þess, að þær
séu svona. Ef svo væri, vil ég
benda á, að menn geta líka ósk-
að þess að efast; og óskin að
efast er ennþá meiri freisting
fyrir hugann, af því að maður
þarf þá ekki að sanna neitt.
Maður getur bara leitt hjá sér
alla hugsun um málið. En svo
að við höldum okkar við efnið
— trúi ég ekki öðru en þessu?
Jú; en þau trúaratriði, sem
ég kem nú að, byggjast ekki á
skynsamlegri ályktun. Ég trúi
þeim eftir frásögum annara.
Trúarviðhorf mitt er ekki mót-
að af því, að það sé sennilegt í
sjálfu sér — ég hefi ekki að-
stöðu til að dæma um það —
heldur hinu, hve mikið álit ég
hef á heimildum þeim, sem það
er sprottið af. Hverjar eru
þessar heimildir? Okkur hefur
borizt erfðakenning, sem brúar
djúp aldanna, og hún f jallar um
atburði, sem talið er að hafi
gerzt fyrir nítján hundruð ár-
um. Og þessi erfðakenning er
sannanleg með rituðum frásögn-
um, sem hafa varðveitzt merki-
lega vel og hafa verið skráðar
á fyrstu árum hennar. í þess-
um frásögnum er þrennt sér-
staklega áberandi: hin einstæða
helgi hinnar sögulegu persónu,
sem þær snúast um; hinir eftir-
tektarverðu spádómar um ævi
hennar, sem koma fram í spá-
dómlegum bókmenntum Gyð-
inga; og hið frábæra vald, sem
sögupersónan virðist hafa haft
yfir náttúruöflunum, svo að
henni tókst jafnvel að sigra
veldi dauðans. Það segir sig
sjálft, að ég hef ekki tíma til
að skýra hér frá öllum þeim
margþættu sönnunum, sem hafa
valdið því, að ég hef orðið að
viðurkenna sannleiksgildi hinna
furðulegu frásagna um þessa
sögupersónu. En ég hef þá
skoðun, að hún hafi verið guð
holdi klæddur, og að kirkjan
sem hún stofnaði, hafi fyrir
persónulega ábyrgð stofnand-
ans, orðið þess megnug að boða
kenninguna sanna og án rang-
færslu. Og fyrir meðalgöngu