Úrval - 01.02.1948, Blaðsíða 88
86
■orval
Þeir trúa því, að heimurinn hafi
orðið til af frumorsök, að vera,
sem varð ekki til af neinni utan-
aðkomandi orsök, hafi skapað
hann. Þeir trúa því einnig, að
þessi orsakalausa vera grípi
stundum inn í orsakakeðju dag-
legra viðburða. Ég sé enga
skynsamlega ástæðu til að ætla,
að alheimurinn eigi sér nokkurt
upphaf, þó að einstakir hlutar
hans, þeirra á meðal jörðin, eigi
sér upphaf. Ég veit, að sumir eðl-
isfræðingar eru mér ósammála
um þetta, en það mundi vera um
klukkutíma verk fyrir mig að
skýra fyrir ykkur, hversvegna
ég held, að þeir hafi rangt fyrir
sér. Ekki trúi ég heldur á
kraftaverk. Það skeður margt
undarlegt, sem við skiljum ekki.
En ég sé enga skynsamlega
ástæðu til að halda, að eitthvað
sé yfirnáttúrlegt, þó að ég þekki
ekki náttúrlegar orsakir þess.
Af þessu leiðir, að ég er guð-
leysingi, að minnsta kosti í viss-
um skilningi orðsins. Ég segi
ekki, að ég sé alger guðsafneit-
ari (agnostic), því að guðsaf-
neitari er sá, sem álítur, að við
getum aldrei komizt að nægilega
öruggri niðurstöðu í guðfræði-
legum málum til að réttlæta trú
í einni eða annari mynd. Ég held
við getum það, og að ef ekki
verður lagður traustari sönn-
unargrundvöllur að guðstrúnni
en gert hefur verið fram til
þessa, muni æ flefri komast á
mína skoðun.
Ég trúi því, að það sé gott,
að fólk hugsi eins og ég, því að
ég held, að trúarskoðanir leiði
menn oft á braut rangrar
breytni. „Kristileg vísindi“
(„Christian Science" — enskur
trúarflokkur) kennir mönnum t.
d. að afneita framförum lækna-
vísindanna, til heilsutjóns, ekki
aðeins fyrir trúbræðurna sjálfa,
heldur einnig náunga þeirra.
Prófessor Ritchie virðist álíta,
að rétt og rangt sé afkvæmi
kristinnar trúar. „Ef kenninga
Krists hefði aldrei notið við,“
sagði prófessorinn í erindi sínu
í þessum erindaflokki, „myndu
styrjaldir, ofsóknir, ofstæki og
hræsni allt vera talið sjálfsagt og
eðlilegt." En það voru til góðir
menn og konur áður en kristin
trú var til, og það eru enn til
góðir menn og konur, sem eru
ekki kristin. Alvarlegra er það,
að á meðan kristnir menn í
Bretlandi trúa þessari fullyrð-
ingu, munu þeir líta á hinar
ókristnu þjóðir í Kína og á Ind-
landi sem „óæðri kynstofn, án