Úrval - 01.02.1948, Page 101
ARABINN 1 SJÖN OG RAXJN
99
unum, og ræður hinna útlendu
pasha hefðu vakið hjá honum
undrun og leiða. Ef einhver hefði
sagt honum, að verið væri að
ræða um „mannréttindi“ hans,
rnundi svipur hans hafa tjáð
algert skilningsleysi. Svo há-
fleyg orð eru ekki til í alþýðu-
máli hans. Ef tekizt hefði að
skýra fyrir honum í einföldum
orðum, hvað átt væri við með
„mannréttindum“, mundi hafa
brugðið fyrir votti af háðsbrosi
á andliti hans. Og ef hann hefði
fengið tíma til umhugsunar og
verið öruggur um að áheyrend-
ur hans væru honum vinveittir,
mundi hann jafnvel hafa skellt
upp úr. Því að þrátt fyrir ævi-
langan þrældóm, fátækt og sjúk-
dóma, hefur honum einhvern
veginn tekizt að varðveita kímni-
gáfu sína.
*
Það er ekki aðeins í klæðn-
aði og hugsunarhætti, sem Mú-
hammeð er frábrugðinn hinum
arabisku diplómötum. Hann lif-
ir í allt öðrum heimi, heimi, sem
leið undir lok í Vestur-Evrópu
fyrir nokkrum öldum. Frá mið-
alda stauragirðingu sinni horfir
hann á útlendinga, flugvélar,
sjúkrahús og stjórnendur lands
síns gegnum móðu margra alda.
Skömmu eftír að ég kom til
Mið-Austurlanda, átti ég að
mæta á blaðamannafundi í að-
albækistöðvum Arababanda-
lagsins í Kaíró. Eg hafði týnt
heimilisfanginu, og hringdi því
til kunningja míns, sýrlenzks
stúdents. Sabri rataði ekki, en
taldi víst, að allir borgarbúar
vissu hvar Arababandalagið
hefði aðsetur. Bauðst hann til
að spyrjast fyrir og fylgja mér
síðan. Trúlega var þetta rétt:
allir Washingtonbúar mundu
geta vísað ókunnum manni á
þinghúsið.
„Al jamia arabeiyahff sagði
Sabri við bílstjórann, sem ók
okkur. Bílstjórinn leit á okkur
skilningslausum augum. Sabri
endurtók hægt þessi orð, sem
þýddu „Arababandalagið“.
„Mish haraffc — skil ekki —
svaraði bílstjórinn. Sabri reyndi
að skýra það fyrir honum, en
bílstjórinn hristi höfuðið.
Sabri sagði honum þá að aka
inn í miðbæinn. Þar fórum við
úr og snerum okkur að manni,
sem stóð upp við háan vegg og
horfði á okkur sljóum forvitn-
isaugum. Þetta var Múhammeð
— Kaíróútgáfan: sveipaður
langerma, ljósblárri skikkju,
með rauða tyrkjahúfu úr geivi-