Úrval - 01.02.1948, Síða 105
ARABINN 1 SJÓN OG RAUN
103
með ernliverja meltingarsjúk-
dóma, augnsjúkdóma eða aðra
sjúkdóma. Sýrlenzkur læknir —
einhver raunamæddasti maður
sem ég hef fsuir hitt — sagði
mér að venjulegur fellah væri
haldinn allt að þrjátíu sjúkdóm-
um. Hann nefndi blóðleysi, krók-
orm, berkla og giákómu sem
dæmi um þá algengustu. Ekkert
er gert við þessum sjúkdómum.
í sveitaþorpunum eru engir
læknar, því síður sjúkrahús.
Sem dæmi um áhuga stjórnar-
valdanna á heilbrigðismálum má
nefna reynslu amerískra her-
lækna, sem á stríðsárunum buðu
egypsku stjórninni að reisa
bólusetningarstöð gegn tauga-
veiki. Boðinu var ekki sinnt.
Bóluefni, sem Ameríkumenn
gáfu til að koma í veg fyrir yfir-
vofandi taugaveikisfaraldur,
lenti á svarta markaðinum, þar
sem efnafólk Kairóborgar
keypti það fyrir offjár.
En þó að Múhammeð sé kúg-
aður og klafabundinn, er þó ann-
ar til, sem lifir enn aumara lífi:
konan hans. I augum hins
þreytta fellah er aðalhlutverk
konunnar að létta svolítið á hin-
um þungu byrðum, sem hvíla á
sliguðum herðum hans og að
fullnægja kynferðislegum þörf-
um hans. Lagleg sveita-
stúlka með vinnufúsar hendur
er lítið eitt verðhærri markaðs-
vara en ungur asni, þótt hún sé
hins vegar ekki jafnverðmæt og
hestur. Múhammeð er vís að
taka sér eina eða tvær konur til
viðbótar, ef hann heldur að það
sé heppileg fjárfesting. Hann
getur alltaf losnað við rellna
konu með því að segja við hana
þrisvar sinnum: „Ég skil við
þig.“
Þetta er handhæg aðferð, því
að það gæti orðið erfitt fyrir
Múhammeð að þurfa að leita til
dómstólanna. Fjórir af hverjum
fimm Múhammeðum eru ólæsir.
En meðan Múhammeð er ekki
annað en tvífætt vinnudýr, hef-
ur hann næsta litla þörf fyrir
lærdóm. Hinn fátæklegi orða-
forði hans er nægilegur til að
lýsa þeim meginþáttum, sem líf
hans er slungið af: vinnu, sulti
og tímgun. Ef sjóndeildarhring-
ur Múhammeðs yrði víkkaður,
„gæti það gert hann óhamingju-
saman!“ Þessi orð lét egypzkur
þingmaður falla í viðtali við mig
í hinum skrautlega borðsal kon-
unglega bifreiðaklúbbsins í
Kairó.
„Þessir menn eru lítið betri en
dýr,“ sagði þingmaðurinn. „Ef