Úrval - 01.02.1948, Blaðsíða 111
TILLOTSON-SAMSÆTÍÐ
109
iiurð á vængjadyrum. „Ég biðst
afsökunar á honum. Hann er
eins og hjólskautabraut." Hann
brá hendinni á slökkvarann —
og allt í einu var hinn geysistóri
salur uppljómaður. „Þér hafið
sjálfsagt heyrt um hann föður
minn, vesalinginn," hélt Badgery
lávarður áfram. „Dálítið geggj-
aður, þér skiljið; einskonar vél-
fræðisnillingur með lausa
skrúfu. Hann var vanur að hafa
leikfangsjámbraut 1 þessum sal.
Honum þótti ákaflega gaman að
skríða á gólfinu og elta lestina.
Málverkunum var hlaðið nr'iri í
kjallara. Þau voru ekki féleg
útlits, þegar ég fann þau: Það
voru farnir að spretta sveppir á
myndum Botticellis. Ég er upp
með mér af þessu málverki
Poussins; hann málaði það fyr-
ir Scarron."
„Frábært!" sagði Spode og
sveiflaði hendinni, eins og hann
væri að móta mynd úr eintómu
loftinu. „Hve form trjánna og
fólksins er dásamlegt! Hvílíkt
listamannshandbragð á ..."
En Badgery hafði haldið á-
fram og stóð nú fyrir framan
trélíkneski af Maríu mey frá
fimmtándu öld.
„Rheimsstíll," sagði hann.
Þeir voru fljótir að „skoða"
safnið. Badgery leyfði aldrei
gesti sínum að staðnæmast nema
í f jörutíu sekúndur fyrir framan
hvert listaverk. Spode hefði vilj-
að dvelja lengur og athuga þessi
undurfögru listaverk í ró og
næði. En hann mátti það ekki.
Þegar þeir höfðu lokið við
listaverkin í salnum, fóru þeir
inn í lítið herbergi, sem innan-
gengt var í. Spode varð frá sér
numinn yfir því, sem þar bar
fjrnir augu.
„Þetta er eins og það væri
tekið úr verkum Balzacs," hróp-
aði hann. „Un de ces salons do-
rés ou se déploie un luxe inso-
lent. Þér skiljið."
„Nítjándu aldar herbergið
mitt,“ sagði Badgery tii skýr-
ingar. „Ég skjalla sjálfan mig
með því, að það sé það bezta á
sínu sviði, að undanskildum her-
bergjunum í Windsorhöll."
Spode læddist á tánum um
herbergið og starði forviða á alla
þessa gripi úr gieri, bronzi og
postulíni, útsaum og máluðu
silki, perlum og vaxi — þessi
furðulegu afsprengi úrkynjaðr-
ar listar. Veggirnir voru þakt-
ir málverkum eftir ýmsa mál-
ara. En myndin, sem vakti
einkum athygli Spodes, var
miðlungsstórt málverk af inn-