Úrval - 01.02.1948, Síða 118
116
ÚRVAL
búinn að gleyma herbergiskytr-
unni, veggjalúsunum og þeim
fáu skildingum, sem enn forðuðu
honum frá því að verða að fara
í fátækrahælið. „Hvílík dæma-
laus heppni, að þér skylduð hafa
upp á mér einmitt núna. Ég
fæ peninga, og eftir dálítinn
tíma — hver veit? — verð ég
aftur búinn að fá nógu góða
sjón, til þess að geta málað. Mér
finnst sjónin vera skárri. Ó,
framtíðin er glæsileg.“
Tillotson leit upp, brosti út
undir eyru og kinkaði kolli, til
áherzlu orðum sínum.
„Trúið þér á lífið eftir dauð-
ann?“ sagði Spode, en roðnaði
um Ieið af blygðun yfir misk-
unnarleysi orða sinna.
En Tillotson var í allt of góðu
skapi, til þess að skilja. þýðingu
þeirra.
„Lífið eftir dauðann,“ endur-
tók hann. „Nei, ég hef ekki trú-
að á svoleiðis þrugl — ekki síð-
an 1859. „Uppruni tegundanna"
breytti skoðunum mínum, skilj-
ið þér. Ekkert líf eftir dauðann
mér til handa, þakka yður fyrir!
Þér munið auðvitað ekki eftir
uppnáminu, sem sú bók vakti.
Þér eruð svo ungur, hr. Spode.“
„Jæja, ég er ekki eins gamall
og ég var,“ svaraði Spode. „Þér
vitið, hvað maður getur verið
fullorðinn, þegar maður er
skólapiltur. Nú er ég orðinn
nógu gamall til þess að gera mér
ljóst, að ég er ungur.“
Spode var að hugsa um að
ræða þessa mótsögn dálítið nán-
ar, en hann veitti því athygli, að
Tillotson hlustaði ekki á hann.
Hann hugsaði sér að nota þessa
gáfulegu athugasemd síðar með-
al fólks, sem kunni betur að
meta slíkt andríki.
„Þér voruð að tala um „Upp-
runa tegundanna" eftirDarwin,“
sagði hann.
„Var ég að því?“ sagði Till-
otson eins og hann vaknaði af
draumi.
„Um áhrifin, sem bókin hafði
á trúarlíf yðar, herra Tillotson.“
„Já, alveg rétt. Hún gerði mig
trúlausan. En ég minnist fagurs
ljóðs eftir lárviðarskáldið okk-
ar, eitthvað á þá leið, að það sé
meiri trú í heiðarlegum efa held-
ur en í öllu ... öllu . .. ég er bú-
inn að gleyma hverju, en þér
skiljið, hvað ég á við. Ó, þetta
var erfiður tími fyrir trúna. Ég
er feginn, að Haydon, kennarinn
minn, lifði hann ekki. Hann var
mikill ákafamaður. Ég man eftir
því, að hann gekk um gólf í
vinnustofu sinni, og söng, hróp-