Úrval - 01.12.1953, Blaðsíða 16
14
ÚRVAL
Kann taldi víst, að flestir flug-
manna sinna myndu gefa sig
fram þegar þeir heyrðu um á-
ætlunina. „Þeir sögðu fátt,“
sagði hann síðar, ,,en augu
þeirra töluðu þeim mun skýrara
máli um fúsleik þeirra til að
deyja fyrir land sitt.“ Allir
nema tveir gáfu sig fram.
Ákveðið var, að Yukio Seki
undirforingi stjórnaði árásinni.
Hann var mikið kjarkmenni og
frábær flugmaður og braut-
skráður úr flotaháskólanum í
Eta Jima. Þegar Tamai sagði
honum fráútnefninguhans, hall-
aði Seki sér fram á borðið, lok-
aði augunum og hvíldi höfuðið í
höndum sér. Hann var nýkvænt-
ur þegar hann fór að heiman. I
nokkrar sekúndur sat hann
hreyfingalaus, nema að hnef-
arnir krepptust svo að hnúarn-
ir hvítnuðu. Svo lyfti hann höfð-
inu, strauk aftur hár sitt og
mælti skýrri, rólegri röddu:
,,Ég tek fúslega að mér að
stjórna árásinni.“
Skömmu eftir sólarupprás 20.
október ávarpaði Ohnishi að-
míráll hina 24 kamikaze flug-
menn*) og rödd hans skalf af
geðshræringu: „Japan er nú í
stórkostlegri hættu. Björgun
lands vors er nú ekki á valdi ráð-
herra, herráðs eða lágt settra
hershöfðingja, eins og mín. Hún
er á valdi hugdjarfra ungra
manna eins og yðar.“ Það voru
*) Kamikaze þýðir hinn guðlegi
vindur.
tár í augum hans þegar hann
sagði: „Eg bið yður að leggja
yður alla fram og óska yður
góðs árangurs.“
Samskonar kvaðning kami-
kaze flugmanna átti sér stað í
öðrum flugstöðvum. Á Cebu
voru allir flugmenn saman-
komnir klukkan 6 að morgni
hinn 20. október. „Sérhver sjálf-
boðaliði,11 sagði flugsveitarfor-
inginn, ,,á að skrifa nafn sitt og
stöðu á blað og setja það í um-
slag og loka því. Þeir sem ekki
vilja gerast sjálfboðaliðar, setji
auða miða, í umslagið. Þér fáið
þrjár klukkustundir til að íhuga
málið.“
Klukkan níu afhenti flugliðs-
foringi rúmlega 20 umslög í
bækistöð foringjans. Aðeins tvö
voru með auðum miðum í.
Hinn 25. október var fyrsta
árangursríka kamikaze-árásin
gerð; sex flugvélar hófu sig til
flugs í dögun frá Davao á Suð-
ur-Mindanao og löskuðu að
minnsta kosti þrjú flugvélamóð-
urskip. Sama morgun fór önnur
sveit frá Mabalacat undir stjóm
Seki. Flugmaður úr einni fylgd-
arflugvélinni skýrir svo frá:
„Þegar fjögur flugvélamóður-
skip og sex önnur skip komu í
augsýn bjóst Seki til árásar.
Hann steypti sér ofanáeittflug-
vélamóðurskipið; önnur flugvél
hitti sama skip og steig mikill
reykur upp af því. Tveir aðrir
flugmenn hittu einnig, annar
flugvélamóðurskip og hinn létt
beitiskip.“