Úrval - 01.12.1953, Blaðsíða 69
LÆKNIRINN BAK VIÐ TJÖLDIN
67
'Og oft finnur hann sjúkdóma,
■sem hvorki sjúklingurinn né
læknir hans höfðu hugmynd um.
Það geta verið berklasýkiar í
hálseitlum, eða aðrir sýklar í
annarskonar vefjum. Ef sjúk-
lingurinn deyr, framkvæmir
sjúkdómafræðingurinn stundum
krufningu til þess að skera ná-
kvæmlega úr um dánarorsök-
ina. Árangurinn af rannsóknum
hans stuðla að nákvæmari sjúk-
dómsgreiningum í framtíðinni.
Nýlega fékk ég tækifæri til
að horfa á sjúkdómafræðing við
vinnu sína í stóru sjúkrahúsi.
1 skurðstofunni voni skurðlækn-
ar að skera upp unga konu.
Nokkrum vikum áður hafði
læknir sjúklingsins uppgötvað
hnúta á skjaldkirtli hennar og
grunaði, að um krabbamein gæti
verið að ræða. Með skurði eftir
náttúrlegri húðfellingu á hálsi
konunnar hafði skurðlæknirinn
flett ofan af kirtlinum og skor-
ið af honum flipann með hnút-
unum. Hjúkrunarkonan kom
með vefinn til sjúkdómafræð-
ingsins. Var þetta krabbamein?
Meðferðin á sjúklingnum — já,
líf hans var undir þessari vef ja-
rannsókn komin, og skurðlækn-
arnir biðu eftirvæntingarfullir
eftir niðurstöðunni.
Sjúkdómafræðingurinn fór
sér að engu óðslega, hann skar
fleygmyndað stykki úr stærsta
hnútnum og setti það í mik-
rotom. Mikrotom er einskonar
áskurðarvél — aðeins miklu
minni og nákvæmari — hún get-
ur skorið sneiðar, sem eru ekki
nema 1/100 úr mm á þykkt. Svo
úðaði hann stykkið með ísköldu
koldioxýði, og á augabragði
stirðnaði það og var nú vel
sneiðfast.
Hann sneri handfanginu, sem
setti hnífinn af stað. Með gler-
staf tók hann upp sneiðarnar,
og lagði þær í skál með vatni í.
Því næst litaði hann þær með
litarefni, þannig að bygging
frumanna kom skýrt í ljós, og
setti þær á nokkrar glerplötur.
Svo lét hann eina glerplötuna
undir smásjána og skoðaði vef-
inn. Það mátti glöggt greina
hinar lituðu frumur, sem voru
skýrt afmarkaðar. Hann rann-
sakaði þrjár þynnur í allt — til
að leita af sér allan grun. Loks
leit hann upp og horfði á hjúkr-
unarkonuna. „Góðkynjað,“ sagði
hann.
Rannsóknin öll hafði tekið
sex mínútur. Hjúkrunarkonan
flýtti sér með skilaboðin til
skurðlæknanna. Fáeinum mínút-
um síðar var búið að sauma
saman skurðinn á hálsi konunn-
ar, og þegar hún vaknaði af
svæfingunni, gátu læknamir
fært henni gleðitíðindin — svo
var sjúkdómafræðingnum fyrir
að þakka.
Dugiegur sjúkdómafræðingur
verður að geta greint á milli um
500 mismunandi æxlisfruma,
þar af um 250 illkynjaðra
krabbameinsfruma. Hann verð-
ur að þekkja vaxtarhraða hverr-
ar tegundar um sig og vita hve