Úrval - 01.12.1953, Qupperneq 18
16
ÚRVAL,
Okinawa, og það varð að vekja
hann til að hefja flugið inn í
eilífðina.
I bardögunum um Okinawa
gerði flugherinn meira en 1800
sjálfsmorðsárásir. Og þegar
Japanar gáfust upp höfðu 2519
flugmenn fórnað lífi sínu.
Nokkrum klukkustundum eft-
ir að stjórnarvöldin boðuðu að
vopnaviðskiptum skyldi hætt,
kaus Ugaki aðmíráll, yfirmaður
fimmta flughersins, sér sama
dauðdaga og hann hafði kallað
yfir marga menn sína. Hann
svifti tignarmerkjunum af ein-
kennisbúningi sínum og mælti
við menn sína: ,,Ég ætla að fara
til kamikazeárásar á óvinina á
Okinawa. Þeir sem vilja fylgja
mér rétti upp höndina.“
Sjálfboðaliðarnir urðu fleiri
en flugvélai'nar sem til voru. Af
ellefu flugvélum, sem fóru af
stað, tilkynntu sjö „steypum
okkur til árásar“ — þeirra á.
meðal var fhigvél Ugaki að-
míráls.
Sama kvöldið skrifaði Ohn-
ishi aðmíráll, sem nú var orðinn
varaformaður flotaráðsins í
Tokyo, svofellt kveðjubréf: „Ég
votta sálum látinna undirmanna
minna dýpstu viðurkenningu.
fyrir dýrmæt afrek þeirra. I
dauðanum vil ég biðja þessa
hugdjörfu menn og fjölskyldur
þeirra afsökunar.“ Því næst
risti hann sig á kvið með sam-
uraisverði.
Hann neitaði að þiggja lækn-
ishjálp og lifði við miklar þján-
ingar þangað til klukkan sex
daginn eftir. An efa hefur hann
kosið sér þennan kvalarfulla
dauðdaga til þess að friðþægja
fyrir þátt sinn í þeirri djöful-
legustu hernaðaraðferð, sem
þekkzt hefur í allri styrjalda-
sögu mannkynsins.
□---□
1 kennslustund.
Kennslukonan í barnaskólanum bað börnin einu sinni að’
teikna það sem þau vildu helzt verða, þegar þau væru orðin
stór —■ t. d. brunaliðsmann, bílstjóra, flugmann o. s. frv.
Þegar teiknitímanum var lokið, komu öll börnin með teikn-
ingar sínar nema ein telpa.
„Karen min,“ sagði kennslukonan, „langar þig ekki til að
verða neitt þegar þú ert orðin stór?“
„Jú, mig langar til að giftast, en ég veit ekki hvemig ég á
að teikna það.“ — Verden Idag.