Úrval - 01.02.1956, Qupperneq 59

Úrval - 01.02.1956, Qupperneq 59
SUÐURAFRlKA I TÁKNI ÖTTANS 57 um óyfirstíganlegar hindranir hafa verið lagðar í götu inn- borinna unglinga, sem vilja stunda framhaldsnám. Háskólanám er að áliti hvítra þjóðernissinna sérréttindi hvítra manna. I desember 1953 boðaði dr. Malan þá ætlun sína, að loka háskólunum í Höfðaborg og Witwatersrand fyrir innborn- um nemendum, en þeir voru tveir af þeim fjórum háskólum landsins, sem stóðu opnir inn- bornum mönnum. I maí 1955 var al-afrísku deildinni við Suð- urafríku háskólann lokað „um stundarsakir", þegar stúdentar mótmæltu mismun kynþátta. Allt útlit er því fyrir, að æðri menntun verði innbornum mönn- um lokuð í framtíðinni. En þær hömlur sem langharð- ast koma niður á almenningi af þeldökku kyni, eru lögin sem skylda þá til að bera einskonar vegabréfabók, þar sem lesa má æviferilsskýrslu handhafans. Án þessarar bókar getur eng- inn fengið atvinnu í borgum landsins. Og lögin, sem kveða á um ferðafrelsi innborinna manna eru ákaflega flókin. Sá maður, sem er einna fróð- astur um lög er varða innborna menn í landinu, hefur lýst því hvernig innbornum mönnum er næstum ókleift að hlýða lögun- um, þótt þeir séu allir af vilja gerðir. Hann skrifar: „Núver- andi réttarstaða innborinna manna er þannig, að lögreglan getur hvenær sem er handtekið hvern þeirra sem er á aðalgötu Jóhannesborgar, og mun engum saksóknara verða skotaskuld úr því að finna lagafyrirmæli, sem hann hefur gerzt brotlegur við.“ Eitt árið fyrir skömmu voru 968.593 manns handteknir fyrir brot á vegabréfalögunum og 861.269 dæmdir. Augljóst er, hve mikinn kostnað svo ofboðs- legur málarekstur hefur í för með sér. En apartheid-stefnan verður ekki framkvæmd án vegabréfabókanna, með öðru móti verður daglegu eftirliti með innbornum mönnum ekki við komið. Opinberir embættismenn, sem verja apartheid, færa ýmislegt fram sér til málsbóta: (1) Þel- dökkum mönnum er yfirleitt ekki mismunað í verzlun; m.ö.o. hafi þeldökkur maður peninga, er hann frjáls að því að eyða þeim. (2) Á mælikvarða inn- borinna manna eru laun þeirra há. Ella, segja þessir talsmenn ríkisstjórnarinnar, mundu þau hundruð þúsunda manna, sem flutzt hafa inn í landið að norð- an, ekki hafa komið og setzt þar að. (3) Stjórnin leggur fram mikið fé til skólamála. Þeldökk börn eiga greiðari að- gang að skólum í Suðurafríku en í flestum öðrum löndum álf- unnar sunnan Sahara. (4) Vísir að blaðaútgáfu þeldökkra manna er í landinu. (5) Negrar eru teknir í lögregluna (þeim er þó ekki leyft að bera skotvopn og mega ekki handtaka hvíta.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Úrval

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.