Úrval - 01.02.1956, Síða 80
78
ÚR VALl
„Ég kannast ekkert við
hann,“ sagði frúin undrandi.
Guð minn góður, og hefur hann
unnið Nóbelsverðlaunin? Fyrir
hvað, svo sem?“
Bunin, sem er eini rússneski
rithöfundurinn, er hlotið hefur
Nóbelsverðlaun, bjó þá í eymd
og örbyrgð sem flóttamaður í
París. Hann kom til Stokkhólms,
tók við peningunum, hvarf aft-
ur til Parísar og fór á eitt meiri-
háttar fyllirí. Ári seinna átti
hann ekki einn eyri eftir af
verðlaunum.
Shaw tók ekki á móti verð-
launum sínum. Hann gaf þau
til stofnunar ensk-sænsks bók-
menntasjóðs. Um verðlaunaféð
sagði hann, að það væri „björg-
unarbelti, sem kastað er til sund-
manns, er þegar hefur bjargað
sér heill á húfi til lands“.
Sillanpáá, Finninn, var, eins
og margir aðrir verðlaunahafar,
á annarri skoðun en Shaw. Þeg-
ar hann hlaut verðlaunin 1939,
stóð finnsk-rússneska stríðið
sem hæst og loftárásir voru tíð-
ar á Helsingfors, þar sem hann
átti heima. En þrátt fyrir loft-
árásarhættuna sendi hann börn-
in sín sjö út á götu til þess
að kunngjöra, að faðir þeirra
væri orðinn ríkur. Börnin hlupu
umgöturnar oghrópuðu: „Pabbi
er orðinn ríkur! Húrra! Pabbi
er orðinn ríkur!“
Knut Hamsun var í f járkrögg-
um, þegar hann hlaut verðlaun-
in 1920. Hann varð svo kátur
þegar hann fékk tíðindin, að
hann ákvað að gera sér ærlega-
glaðan dag. Kvöldið sem hann
tók á móti verðlaununum, hófst
hálfsmánaðar drykkja. I galsa
gekk hann að einum virðulegum
meðlim sænsku akademíunnar
og tók kröftuglega í vangaskegg'
hans; síðan gekk hann reikulum
skrefum til Selmu Lagerlöf, er
einnig var meðlimur akademí-
unnar, gaf henni selbita í síð-
una, svo að söng í lífstykkinu
hennar. „Þetta hljómar eins og~
bjöllubauja," sagði hann, „ég
hlýt að hafa tekið vitlausan
kúrs!“
Ernest Hemingway hlaut
verðlaunin í fyrra fyrir bókina
Gamli maðurinn og hafið. ,,—
bók sem ég skrifaði af því að
ég var blankur," sagði hann.
Þegar Halldór Kiljan Lax-
ness, Nóbelsverðlaunahöfundur-
inn í ár, frétti að hann hefði
fengið verðlaunin, sem nema
590.000 króna, lét hann svo
ummælt við blaðamenn, að
skattayfirvöldin myndu senni-
lega taka 90% af verðlaunun-
um. „Ég er að hugsa um að
kaupa brennivín fyrir afgang-
inn,“ sagði hann.
Ameríkumaðurinn Sinclair
Lewis, sem fékk verðlaunin
1930, sagði: „Ég ætla að nota
peningana til að styrkja ungan,
efnilegan rithöfund.“ Hann átti
við sjálfan sig. Ekki var hann
fyrr kominn til Stokkhólms en
upphófst mikil brennivíns-
drykkja.
Fullyrt er, að eftir verðlauna-