Úrval - 01.02.1956, Síða 84
GRETA GARBO
FRANSKI rithöfundurinn Balzac
komst eitt sinn svo að orði um
skáldkonuna George Sand, að hún
hefði verið gædd gáfu snillingsins
og það vaeri því ekkert undrunarefni
þótt hún færi ekki troðnar slóðir í
lífi sínu. Sama mætti segja um
sænsku leikkonuna Gretu Garbo, því
að þótt þessar konur væru ekki uppi
á sömu öld, eru þær svipaðar um
margt. Greta Garbo er frægasta og
dáðasta kona sinnar kynslóðar, eins
og George Sand \ar á sinni tíð. Hún
líkist skáldkonunni einnig að því
leyti, að hún hefur haft þor til að
lifa lífinu eftir eigin geðþótta og
tekið þeim óþægindum með jafnaðar-
geði, sem af því hljótast að fara
sínar eigin götur.
Hún hefur orðið fyrir vonbrigðum
í lífi sínu og starfi, eins og George
Sand og raunar allir listamenn. En
vonbrigði Gretu Garbo eru meiri og
sárari, því að engin kona hefur verið
eins dáð og dýrkuð í lifanda lífi
sem hún.
Slík er kaldhæðni örlaganna, að
það var Gretu Garbo þvert um geð
að verða slíkur dýrlingur i hugum
fólks sem hún var. Þegar hún var
smátelpa, langaði hana til að verða
leikkona, eins og þúsundir annarra
telpna hafa þráð fyrr og síðar, og
hana langaði líka til að komast úr
fátæktinni, og það er líka afar al-
geng ósk. En um leið og hún var
að gera þessar óskir sínar að veru-
leika, varð hún frægasta kvikmynda-
leikkohá heimsins og jafnframt ein
sú auðugasta. Ef til vill hefur auð-
urinn og frægðin líka átt sinn þátt
í því, að hún varð einrænni en flestir
aðrir.
Greta Garbo hefur alltaf verið
blaðamönnum erfið viðureignar. ,,Mér
finnst kjánalegt að láta birta viðtal
við mig í blöðunum," sagði hún eitt
sinn. ,,Ég hef ekkert að segja." Enda
þótt þessi orð bæri vott um mikla
hæversku, gefa þau engan veginn
rétta mynd af Gretu Garbo, þv í að
hún gerir sér fulla grein fyrir því
hve merkileg persóna hún er, eins
og allir vita, sem þekkja hana vel.
Hitt er aftur á móti einkenniiegt,
hvers vegna hún afneitar þannig'
sjálfri sér, hvers vegna hún hefur
aldrei getað sætt sig við að vera
Greta Garbo.
1 stað þess að vera Greta Garbo.
kallar hún sig Harriet Brown. Undir
þessu sviplausa dulnefni reikar hún
um stræti New York, Lundúna, Par-
ísar og Vínarborgar. Hún lítur oft
inn í fornverzlanir, og ef hún þarf
að segja til nafns síns, kveðst hún
heita Harriet Brown, enda þótt hún
viti að hún geti engan blekkt með
þessu, allra sízt sjálfa sig. En hún
getur ekki hugsað sér að koma fram
i hlutverki leikkonunnar Gretu Garbo,
þegar hún er meðal ókunnugra. Hún
hefur aldrei lært það hlutverk til
hlítar.