Úrval - 01.02.1956, Side 88
86
TjR VAL,
framan myndavélina og þykjast vera
leikkona.
Þegar gott var veður, gekk hún
oft heim úr vinnunni ásamt öðrum
stúlkum, sem áttu heima I sama
horgarhluta og hún. Á leiðinni var
hún sífellt að tala um að hún ætlaði
að verða ieikkona. Vinkonur hennar
hlustuðu á hana, en lögðu lítið upp
úr tali hennar. Þær sáu sem var, að
hún gerði ekkert til þess að ósk
hennar mætti rætast. Þá gerðist það,
sem svo oft hefur gerzt í heimi
kvikmyndanna. Greta fékk tækifæri
til að koma fram í kvikmynd, meðan
hún var enn starfandi í kvenfata-
deildinni. PUB hafði ráðið Ragnar
Ring kvikmyndastjóra til að gera
stutta auglýsingakvikmynd af kven-
fatnaði vöruhússins. Þegar Ring og
samstarfsmenn hans komu í kven-
fatadeildina, var Greta látin sýna
hattana. Daginn eftir kom Ring að
máli við Gretu. Til þess að myndin
vrði skemmtilegri, kvaðst hann hafa
ákveðið að hafa í henni stuttan
kafla, þar sem sýnt væri, hvernig
konur ættu ekki að klæðast. Hann
bauð Gretu hlutverkið, og hún tók
þvi þegar i stað.
Þessi auglýsingamynd, þar sem
Greta kom fyrst fram á kvikmynd,
er i eigu kvikmyndasafnsins í Stokk-
hólmi. Þegar Greta birtist fyrst í
myndinni, er hún á háhæluðum skóm
og í einhverjum kynlegum klæðnaði,
sem bersýnilega er allt of stór fyrir
hana. Þett.a er út af fyrir sig nógu
skoplegt, en þó keyrir fyrst um þver-
bak þegar Greta fer að sýna flíkina
og breytir henni loks með ýmsum
tilfæringum í — reiðföt. 1 þessari
kvikmynd er Greta glaðleg á svipinn
og dálítið hátíðleg, eins og oft vill
brenna við í heimagerðum kvikmynd-
um.
Ring kvikmyndastjóra þótti Greta
svo fögur og líkaði svo vel við hana,
að hann réð hana til að leika í ann-
a.rri kvikmynd nokkrum mánuðum
seinna. Þetta var auglýsingamynd
fyrir brauðgerð samvinnufélaganna
í Stokkhólmi. Fyrri hluti myndar-
innar er tekinn í garðinum á þaki
hins kunna Strandhótels. Greta situr
við borð með tveim ungum stúlk-
um og er að háma í sig rjóma-
kökur.
Seinni hlutinn gerist á eyju, þar
sem Greta er á skemmtiferðalagi með
þrem hvítklæddum stúlkum. Greta
þrífur poka fullan af kökum, sezt
flötum beinum í grasið og fer að
eta kökurnar af álíka græðgi og
barn, sem er að verða hungurmorða.
Það má með sanni segja, að Greta
sé aðalpersónan í myndinni, því að
kvikmyndavélinni er oftast beint að
henni. Það sem ef til vill mátti finna
að leiknum, bætti hún upp með áhug-
anum fyrir hlutverkinu.
Þegar Greta var farin að leika
í auglýsingakvikmyndum, varð hún
skiljanlega leið á starfi sínu i vöru-
húsinu. Hún hafði að vísu verið
flutt í kjóladeildina, en eftir að lokið
var töku auglýsingamyndanna
tveggja, varð leikferill hennar ekki
lengri að sinni.
En dag nokkurn sumarið 1922 kom
kvikmyndastjórinn Erik Petschler
ásamt tveim kunnum leikkonum inn
í kjóladeildina, þar sem Greta st.arf-
aði. Greta bar strax kennsl á gest-