Úrval - 01.02.1956, Síða 97
GRETA GARBO
95
síðar, en þó mátti sjá þess greini-
leg merki, að þarna var mikil leik-
kona í sköpun. ,,Hún var fögur þá,“
skrifaði Jósep Alsop 1935 um Gretu
Garbo í fyrstu amerísku kvikmynd-
inni, „en ekki eins og hún er nú.
Hárið var dekkra, andlitið kringlu-
leitara og augun ekki eins fjarræn
og dreymin. Það var æskuþokki yfir
henni og hún rétt gaf í skyn með
leik sínum það sem síðar varð . . .
Einu sinni eða tvisvar setti hún upp
hinn milda kaldhæðnissvip, sem hún
getur brugðið yfir sig að vild. En
list hennar var enn á fósturstiginu."
Aðsóknin að The Tnrrent varð góð,
og forráðamenn M-G-M ákváðuþvíað
halda áfram í sama dúr, samkvæmt
gamalli og góðri Hollywoodreglu.
Næsta mynd Gretu var af líku tagi og
sú f vrri; hún hlaut nafnið The Tempt-
ress (Freistarinn) og var líka að
efni til eftir Blasco-Ibánez. Þó var
nú sá munur á, að Stiller var falið
að stjórna töku hennar.
Nú hafði hann loks fengið tækfæri
til að leiðbeina skjólstæðing sínum,
enda lék hann á als oddi og var
fullur áhuga. „Nú skulu þeir fá að
sjá hvað Greta getur," sagði hann
við Lars Hanson.
En það fór fljótlega að bera á
ýmsum erfiðleikum í sambandi við
myndatökuna. Stiller var ráðrxkur
og uppstökkur og þar af leiðandi illa
liðinn af leikurunum og öðru starfs-
liði. Það háði honum líka mjög, að
hann kunni ekki nema fáein orð í
ensku. Leikstjórnin vildi því fara I
handaskolum.
Þegar Stiller hafði unnið við mynd-
ina í tíu daga, var honum vikið
frá, en öðrum manni, Fred Niblo
falin leikstjórnin.
Stiller tók sér þetta mjög nærri,
enda var heilsan tekin að bila. Hann,
sem áður hafði verið stoð og stytta
Gretu var nú sjálfur orðinn hjálp-
arþurfi. Að vísu tók hann að sér
að stjórna töku fáeinna kvikmynda
fyrir önnur félög eftir þetta, en þær
voru ekki merkilegar, og í rauninní
var hlutverki hans i Hollywood lokið.
The Temptress fékk góðar viðtök-
ur og var greinilegur leiksigur fyrir
Gretu Garbo.
*
„Hinn fullkomni elskhugi".
Næsta mynd Gretu Garbo var
Flesh and the Devil (Holdið og djöf-
ullinn), en þar lék hún á móti John
Gilbert „hinum fullkomna elskhuga.
kvikmyndanna". Ekki var fyrr byrj-