Úrval - 01.02.1956, Blaðsíða 105
GRETA GARBO
103
það ár hlaut Luise Rainer fyrir leik
sinn í Góðu landi, eftir sögu Pearl
Buck. Vegir Hollywood eru oft und-
arlegir.
Næsta mynd Gretu Garbo, Con-
quest (María Walewska), var mikil
íburðarmynd og kostaði M-G-M
3.800.000 doilara, en algerlega mis-
heppnuð frá listrænu sjónarmiði,
enda varð hún ekki vinsæl.
En aðdáendur Gretu Garbo höfðu
um þessar mundir miklu minni áhuga
á því sem hún gerði á leiktjaldinu
heldur en einkaiífi hennar. Sam-
kvæmt fréttum frá Hollywood hafði
hún að lokum fundið „drauma-
mann" sinn. Þessi „draumamaður"
var hinn heimskunni hljómsveitar-
stjóri Leopold Stokowski. Stokowski
hafði hitt Gretu Garbo i veizlu í
Hollywood nokkrum mánuðum áður.
„Stocky eyddi ekki miklum tíma í
forleikinn,“ sagði einn veizlugesta
síðar. „Hann hafði engin umsvif, en
sagði Garbo, að þeirra biði ástar-
ævintýri, sem frægt yrði í sögunni.
Það væri skráð í stjörnurnar."
Greta Garbo vissi i fyrstu ekki
hvernig hún átti að taka þessari
framkomu Stokowski, en eftir að
hún hafði sannfærzt um, að samspil
þeirra gæti, ef svo mætti segja,
orðið góð tónlist, sást hún oft með
honurn í samkvæmum. Eins og jafn-
an áður, komust á kreik sögur um
væntanlega giftingu, og mögnuðust
þær um allan helming í október
1937, þegar síðari kona Stokowski
flutti að heiman og sótti um skilnað.
Snemma í desember, þegar skilnað-
urinn v.ar kominn i kring, neitaði
Stokowski því, að nokkuð væri hæft
í því að hann ætlaði að kvænast
Gretu Garbo. En seinna í mánuðin-
um, þegar Greta Garbo sigldi til
Svíþjóðar til að vera hjá ættingjum
sínum um jólin, veittu menn þvú
eftirtekt, að Stokowski fylgdi henni
til skips. 1 febrúar fór Stokowski
einnig til Italíu og settist að í þorp-
inu Ravello, þar sem hann hafði
tekið sér á leigu gamla höll. Viku
síðar var Greta Garbo komin þangað.
Um dvöl þeirra þarna í höllinni
var mikið skrifað, en þau skrif áttu
lítið skylt við staðreyndir. Englend-
ur, sem var kunnugur þjónustuliði
hallarinnar, hefur seinna sagt frá
því hvernig lífi þeirra hjónaleysanna
var háttað. Þau iifðu mjög reglu-
bundu lífi, fóru snemma á fætur og
snemma að hátta, iðkuðu sund og
sólböð og höfðu strangt mataræði.
Klukkan átta komu þau út á sól-
pallinn í sundfötum og iðkuðu þar
í hálftíma sænskar leikfimisæfingar,
sem Greta Garbo stjórnaði. Eftir
morgunverð fengu þau sér sólbað á
pallinum. Stundum fóru þau í göngu-
ferðir. Hádegisverð borðuðu þau
klukkan tólf, hráar gulrætur og ekk-
ert annað. Klukkan hálffjögur var
aðalmáltíð Gretu Garbo, þá borðaði
hún smurt brauð, hunang, ávaxta-
sultu, kökur og ýmislegt fleira fit-
andi. Kvöldverðurinn var einungis úr
jurtaríkinu — hrátt salat og ávextir.
Klukkan átta á kvöldin fór Greta
Garbo í rúmið. Tók hún þá alltaf
með sér flösku af ólífuolíu og lítinn
saltbauk. Þegar hún kom, gaf hún
þjónustustúlkunni fyrirmæli unr það,
að hún vildi fá þetta hvorttveggja
á hverju kvöldi, og á hverjum morgni