Úrval - 01.02.1956, Page 106
104
tJRVAL
Lom stúlkan að hvorutveggja tómu,
flöskunni og bauknum. Þjónustu-
fólkið velti því mikið fyrir sér hvern-
ig hún notaði þetta; héldu sumir að
hún drykki feitina, aðrir að hún
smyrði hörund sitt í henni. En Greta
Garbo fór án þess að það kæmist
að hinu sanna. Saltið taldi það víst,
að hún notaði til aö bursta með
tennurnar.
Þegar Stokowski og Greta Garbo
fóru frá Ravello, óku þau til Rómar
og dvöldu þar í viku á heimili vinar
og starfsbróður Stokowski. Síðan
fóru þau í tveggja vikna ferð um
iNorðurafríku. Svo óku þau norður
Evrópu og komu til Svíþjóðar
snemma í maí. Sögur gengu um það,
að þau væru gift eða ætluðu að
fara að gifta sig. 1 Svíþjóð voru
þau í nærri þrjá mánuði og dvöldu
á sveitasetri Gretu Garbo skammt
fyrir sunnan Stokkhólm. Þar lifðu
þau mjög einangruðu lífi. „Við sá-
um þau aldrei," segir einn af ná-
grönnum þeirra. „Einhver sagði, að
hún og hljómsveitarstjórinn iðkuðu
Yoga-æfingar alla daga, en ekki veit
ég sönnur á því."
1 júlílok hvarf Stokowski aftur
til Bandaríkjanna. Greta Garbo kom
til New York tveim mánuðum síðar,
og veitti blaðamönnum viðtal á
skipsfjöl, þeim til mikillar undrunar.
Að sjálfsögðu spurðu þeir hana um
fréttirnar af giftingu hennar og Sto-
kowski. Hún færðist undan að svara,
en blaðamennirnir létu hana ekki í
friði, og loks sagði hún: „Þið mynd-
uð vist vita það, ef ég væri gift."
Ætlaði hún sér þá aldrei að giftast?
spurðu blaðamennirnir. „Ef ég fyndi
rétta manninn, mundi ég ef til vill
giftast," sagði hún.
Greta Garbo dvaldi nokkra daga
í Nðw York, en sást aldrei með Sto-
kowski. Því næst hélt hún til Holly-
wood. Þar með lauk enn einu ævin-
týri í lífi hennar.
Gayelord Hauser.
1 þrettán ár hafði Greta Garbo
töfrað áhorfendur sína með hæfileika
sínum til að fegra og göfga ást I
meinum. Og eins og flestar skap-
gerðarleikkonur, sem leika í harm-
leikjum, hafði hana lengi langað
til að leika í gamanleik. Að lokum
fékk hún þessa ósk sína uppfyllta,
m. a. með því að gefa í skyn, að
hún ætlaði að hætta að leika. Heim-
komin til Hollywood haustið 1938
eftir níu mánaða dvöl í Evrópu hóf
hún að leika í myndinni Ninotchkci,
sem er gamansöm ádeila á kommún-
ismann. Með þessari mynd sannaði
Greta Garbo ótvírætt hæfileika sína
til að leika gamanhlutverk, og er
óhætt að telja þessa mynd í röð
fremstu mynda hennar.
Meðan á töku Ninotclika stóð, var
Greta Garbo svo óvenjufjörleg og
kát, að þeir sem unnu með henni
undruðust stórlega. Hún var frjáls-
ieg í umgengni við meðleikendur
sína, gerði að gamni sínu við starfs-
fólkið og hló að sjálfri sér, ef svo
bar undir. Hún hafði aldrei fyrr
verið svo fjörug og full af starfs-
gleði. Einn meðleikari hennar trúði
tæpast sínum eigin eyrum, þegar
hann heyrði Gretu Garbo segja: „Ef
maður fer að gera sér áhyggjur,