Úrval - 01.02.1956, Blaðsíða 108
100
0RVAI.
lifnaðarháttum Gretu Garbo. Hann
klifaði á þvi í sífellu, að hfm hefði
enga ástæðu til að vera þunglynd
og einmana. Slíkar tilfinningar, sagði
þessi náttúrupostuli, væru sjálfskap-
arvíti. Það sem hún þyrfti að gera
væri að koma út úr skel sinni, blanda
geði við fólk, kasta sér út í hring-
iðu lífsins.
Greta Garbo fylgdi auðsveip öllum
fyrirmælum Hausers, vafalaust að
miklu leyti af eðlislægri hneigð til
þess að láta stjórna sér. Hún fór
með honum í veizlur á heimilum
vina hans og sótti með honum leik-
hús, veitingahús, hljómleika og mál-
verkasýningar. Samvistir þeirra urðu
að sjálfsögðu blaðaefni, en Greta
Garbo virtist standa á sama; hún
sótti jafnvel nokkra af hinum opin-
beru fyrirlestrum Hausers. Hann
hafði bersýnilega sannfært hana um,
að hún hefði gott af því að koma
þannig fram í dagsljósið.
1 nóvember 1939, nokkrum dögum
eftir frumsýninguna á Ninotchka,
gátu blöðin þess, að Hauser hefði
gefið Gretu Garbo demantshring, og
að hún bæri hann ,,á réttum fingri".
Hvorugt þeirra bar þessa frétt til
baka, og þegar þau fóru saman frá
Hollywood, nokkrum vikum seinna,
töldu höfundar slúðurdálkanna vist,
að Greta Garbo yrði brátt komin
I brúðarsængina.
Hauser sýndi Gretu Garbo aðra
hlið á New York en hún hafði kynnzt
áður. Hann fór með hana í veit-
ingahús og næturklúbba og aðra
opinbera staði, og lét hana taka
þátt I samkvæmislífi borgarinnar.
I byrjun febrúar héldu þau suður
til Flórída og voru þar í stöðugum
veizlum hjá vellauðugum vinum
Hausers. Seint í febrúar fóru þau i
skemmtiferð með lystisnekkjunni
Southern Cross, sem einn af vinum
Hausers, sænski auðkýfingurinn Axel
Wenner-Gren átti. Eftir hálfsmán-
aðar siglingu umhverfis Bahamaeyj-
arnar kom snekkjan til Miami á
Flórida og þar lauk hinum viðburða-
ríku samvistum hennar og Hausers.
Þessi endalok voru Hauser án efa
vonbrigði. Hann hafði vænzt þess
að koma aftur með Gretu Garbo
sem konu sína. Áður en þau fóru
til Flórída, hafði hann trúað nánum
vinum sínum I New York fyrir því,
að hann ætlaði að kvænast ieikkon-
unni, og að hann hefði valið borgina
á Flórída þar sem hjónavlgslan átti
að fara fram. Hann var svo öruggur
um að fá Gretu Garbo fyrir konu,
að hann hafði skilið eftir frásögn
af brúðkaupinu hjá fréttamanni INS
fréttastofunnar. Lofaði Hauser þvl
að staðfesta hana með símtali undir
eins og hjónavígslan væri afstaðin.
Sú staðfesting kom aldrei.
Þó að Hauser tækist ekki, frekar
en Stokowski, John Gilbert eða öðr-
um biðlum, að fá Gretu Garbo að
altarinu, var hann áfram náinn vin-
ur hennar og þau sáust miktð sam-
an I marga mánuði eftir að þau komu
til Hollywood. En eins og áður, þegar
líkt stóð á, missti Greta Garbo smám
saman áhugann, leiðir þeirra skildu,
án þess þó að til nokkurra árekstra
kæmi. Þetta ástarævintýri Gretu
Garbo rann út I sandinn, eins og
önnur ævintýri hennar.