Úrval - 01.10.1958, Page 15

Úrval - 01.10.1958, Page 15
„SPEGILL, SPELILL, HERM ÞÚ MÉR . ÚRVAL stigann til að hefja næsta þátt viðreisnarstarfsins — að ná af höndunum á mér. Ég laut yfir krukkur mínar og pyndingar- tæki; ég skar, svarf, bleikti og nuddaði, og þegar því var lok- ið, gaf ég mér loks tóm til að ná mér í svolítinn matarbita, og í leiðinni hitaði ég vatn á fæt- urna á mér. Ég skaraði í arineldinum og fékk hann til að loga glatt; svo settist ég með bollabakkann á hnjánum og fæturna í heitu sápuvatninu og lét fara vel um mig. Ég hafði hulið þykkt krem- lagið á höndunum með því að setja á mig hvíta bómullar- hanzka, og til að mér skyldi ekki leiðast yfir matnum, hafði ég náð mér í skemmtilega sögu- bók og lagt hana á bakkann bak við diskinn minn. Hárið var enn að drekka í sig næringarolíuna og hékk enn í göndlum, augnalokin voru enn- þá slapandi og mig sveið enn- þá í eldrautt andlitið undir kalda kreminu, en ef ég fengi næði í eina eða tvær klukku- stundir enn, hárþvottalög og hárliðun eins og stúlkan á for- síðumyndinni, var ég viss um, að ég yrði næstum óþekkjanleg. Ég skar bita af eggjakökunni, las nokkrar línur í skáldsög- unni og hætti að tyggja til að hlusta, því að mér heyrðist ein- hver umgangur. ,,Hvað gat þetta verið?“ Ég lagði aftur við hlustirnar, en heyrði ekkert nema gnauðið í vindinum og nið regnsins. Ég skar annan bita af kökunni og stakk upp í mig, og þá var það, að ég fékk undar- legt hugboð um, að ég væri ekki ein. Mér fannst einhver vera að horfa á mig. Ég leit hægt upp, og grunur minn var staðfestur — ég var ekki lengur ein. Mér flugu í hug auglýsingarn- ar um „velklædda kaupsýslu- menn,“ þegar ég sá mennina þrjá standa við dyrnar. Sá í miðjunni, með furðusvipinn, var Martin; til hægri handar var að- alforstjórinn í velsniðnum yfir- frakka með harðan hatt, og sá til vinstri með regnhlífina und- ir hendinni var ókunnur maður. Martin hóf máls. ,,Mér datt í hug,“ sagði hann kuldalega, ,,að við litum hingað inn í há- degisverð.“ Ég lagði bakkann frá mér, steig léttilega upp úr fótabað- inu og strauk hárolíuna úr aug- unum; ég fann bráðið kremið renna niður funheitt, vandræða- legt andlit mitt, en ég gekk samt til þeirra. Ég rétti fram hönd með hvítum hanzka og brosti þving- að og sársaukafullt. „Þið eruð hjartanlega velkomnir,“ sagði ég og hneigði mig. 13
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.