Úrval - 01.10.1958, Page 36
TJRVAL
GLERAUGU HANDA GLÁMSKYGGNUM
uppsetningu hins nýja, risastóra
stjörnusjónauka á Palomar-
fjalli. Þá datt honum í hug, að
það hlyti að vera hægt að búa
til gleraugu, sem byggðust á
grundvallarreglum sjónaukans
og væru með fleygmynduðum
linsum í stað hnattlagaðra.
Hann bjó til nokkrar gerðir af
slíkum linsum og reyndi þær,
tvær fyrir hvort auga, og
heppnin var með honum — ára-
langt starf hafði borið ávöxt.
Hann hafði hvað eftir annað
reynt að fá f járhagslegan stuðn-
ing til rannsóknanna, bæði frá
einstökum stofnunum og yfir-
völdum vestanhafs, en árang-
urslaust. Hver vildi styrkja
skýjaglóp, sem ætlaði sér að
búa til gleraugu handa fólki með
2% sjón!
Til að gefa dálitla hugmynd
um, hvað átt er við með 2%
sjón, skulum við hugsa okkur,
að sjúklingurinn eigi að telja
fingur á manni, er stendur í
eins metra fjarlægð. Ef honum
tekst það, eru miklar líkur til,
að nýju blindrargleraugun komi
honum að notum. Þau eru fram-
leidd í tveim gerðum, lesgler-
augu og fjarsýnisgleraugu, og
eru aðeins ætluð fólki, sem er
svo glámsýnt, að annars konar
gleraugu eru gagnslaus.
Þessi nýja uppfinning gerir
mönnum fært að nota til hlítar
hina ósködduðu hluta nethimn-
unnar og fá þannig nálægt 60
gráða sjónsvið. Ekki skiptir
neinu máli í því sambandi,
hvaða sjúkdómur hefur skadd-
að augað. Af þessu má þó ekki
draga þá ályktun, að gleraugun
geti læknað sjúklinginn — það
er útilokað; þau eru ekki annað
en sniðulega útbúið stækkunar-
gler. Stjörnusjónaukinn risa-
stóri var smækkaður niður í
gleraugnastærð, já meira að
segja niður í barnagleraugu! Nú
er hægt að leggja til hliðar bæk-
ur með blindraletri og fækka
leiðsöguhundum. Börn, sem ör-
lögin léku svo grátt, að þeim
var meinað að taka þátt í leikj-
um félaganna og ná eðlilegum
þroska í skólunum, geta nú lært
i bekk með heilbrigðum börnum.
Risasjónaukinn á Palomar-
f jalli, sem einhvern tíma í fram-
tíðinni á kannski eftir að gegna
merkilegu hlutverki i landnámi
vísindanna úti í geimnum, varð
fyrirmyndin að nýju hjálpar-
tæki fyrir milljónir manna ■— að
vísu á takmörkuðu sviði, en þó
með ótæmandi möguleika, sem
okkur eru nú huldir, en framtíð-
in ein getur skorið úr.
Næsta skref dr. Feinblooms á
að verða það að sameina augn-
linsurnar og nýju blindragler-
augun og reyna þannig að
auka sjónsviðið upp í eðlilega
vídd. Og það eru ekki aðeins
sjúklingarnir sjálfir, heldur
einnig þeirra nánustu, þjóðfé-
lagið allt, sem bíður í eftirvænt-
ingu og von eftir þeim degi, er
hinn hugdjarfi vísindamaður
brýtur þetta nýja blað í sögu
uppfinninganna.
34