Úrval - 01.10.1958, Blaðsíða 57
Unglingum bannaður aðgangur!
IJr bókinni „Jungendliche haben keine Zutritt“,
eftir Wolfgang Baranowsky.
1 eftirmála að bókinni segir um höfundinn, að hami sé fœddur
28. nóv. 1929 í Berlín, og Jiafi sem bam kynnzt hörmungum styrj-
aldarinnar því að hann átti heima í Berlin fram i jamiar 19Jfij, og
einnig hinu sálarlausa hernaðaruppeldi i félagsskap Hitlersœsk-
unnar. Síðan hafi hann helgað sig baráttunni gegn styrjöldum og
hernaðaranda. Bœklingur sá sem eftirfarandi kafli er tekinn úr
fjallar einkum um uppeldismál og er ákœruskjal ungs manns gegn
ríkisváldi, kirkju og foreldrum fyrir hræsni og yfirdrepsskap í
framkomu sinni við œskuna og uppeldi hennar.
SKAMMIST þið ykkar ekki,
fullorðna fólkið, að vera
með alls konar pukur og ólifn-
að í reyksvældum drykkjukrám,
skuggalegum næturklúbbum og
klúrum dansstöðum. sem þið
verðið að dylja eins og glæp
fyrir okkur unglingunum? Þið
segist æfla að ala okkur upp,
en blygðist ykkar svo fyrir ó-
flekkaða æsku okkar? Eða af
hverju megum við, börnin ykk-
ar, ekki taka þátt í gleði ykk-
ar, ef hún er óblandin?
Oft höldum við, að þið séuð
aðeins að vekja forvitni okkar
á hlutum, sem eigi að vera okk-
ur lokuð bók fram að átján eða
tuttugu og eins árs aldri. Þið
ættuð þó að vita, að öll bann-
vara er sérlega freistandi. Ein-
mitt undir slíkum kringumstæð-
um verður ævintýralöngun ung-
lingsins óvenju sterk. og hann
reynir því með öllum brögðum
að lauma sér inn í næturklúbb
eða kvikmyndahús í trássi við
lög og rétt, ef eitthvað vafasamt
er þar á boðstólum. Eruð þið í
rauninni svo heimsk að halda,
að skipunin: ,,Unglingum bann-
aður aðgangur“, sé runnin und-
an rifjum einhverra siðgæðis-
stofnana ? Nei, ónei, þetta er að-
eins auglýsingabrella frá fram-
leiðendunum, sem vilja telja
ykkur trú um, að sýningar
þeirra- séu ófínni en þær eru. Og
þeir hugsa til þeirra tíma, þegar
engir foreldrar eða kennarar
geta sagt okkur fyrir verkum
og engin siðferðislögregla get-
ur tekið okkur til bæna fyrir
að ætla að laumast inn, vegna
þess að við höfum ekki aldur
til.
Og það, að kveikja neista for-
vitninnar í brjósti okkar og
55