Úrval - 01.10.1958, Page 59
UNGLNGUM BANNAÐUR AÐGANGUR!
URVAL
njóta þeirra lífsins lystisemda,
er það ætlaði sjálfu sér.
Hvers vegna er okkur bannað
svo margt, sem þið hafið aug-
sýnilega ánægju af í hversdags-
lífinu ? Okkar ágætu kennimönn-
um stæði það líka nær að koma
fram við okkur, skjólstæðinga
sína, sem góðir feður, í stað
þess að flækja okkur í enda-
lausan og ómerkilegan spurn-
ingavaðal, sem þeim sjálfum er
ofvaxið að greiða úr, eða þá að
þvæla fram og aftur um hluti,
sem við unglingarnir höfum enn
engan skilning á. Hvaða vit er
í því, að ætla að svala fróðleiks-
fýsn okkar með því einu að slá
út í aðra sálma og segja, að
þetta „sé ekkert fyrir okkur“
eða að við „fáum nógu snemma
að vita það“. Við það glatið þið
trúnaði okkar, því að það megið
þið vita, að skýringar ykkar
geta aldrei komið of snemma.
Þegar reynsla okkar af götunni
hefur gert kynlífið fyrirlitlegt í
augum okkar eða við höfum
saurgað hin heilögu vé, koma
ráðleggingar ykkar að litlu
haldi. Við eigum erfitt með að
skilja, hvers vegna okkur er svo
bráðnauðsynlegt að vita um
hjartastarfsemi okkar og vöðva,
en ekki um kynfæri okkar. Er
það einhver glæpur? Eruð þið
þá orðin svo spillt, að þið þorið
ekki að ræða þessi mál opin-
skátt við bömin ykkar?
Ef þið viljið ekki koma því
inn hjá okkur, að ástin, sem
við lítum á sem innilega kennd,
samhug tveggja sálna, hjartan-
leg tengsl föður okkar og móð-
ur, sé einhver viðbjóður, og að
kynferðismök manna séu and-
styggilegur löstur, alveg gagn-
stætt því sem er hjá dýrunum,
þá verið hreinskilin við okkur!
I þessum efnum er þögnin lygi,
blygðunin vanþroski og hræsnin
glæpur!
Það sem er náttúrlegt, er fag-
urt. Það sem er rétt og flekk-
laust þarf aldrei að pukrast
með. Það sem sagt er í hrein-
skilni, útilokar ljótar og leiðar
hugsanir — eftirþanka, sem
engum eru til góðs. Ef við viss-
um það öll, hvaða veganesti
venjulegur heilbrigður maður
þyrfti á lífsleiðinni, væri þá ekki
hreinasti óþarfi að vera með öll
þessi boð og bönn? Þið kennið
okkur að reikna, áður en þið
látið okkur eina um innkaupin,
en í ástamálum eigum við fyrst
að reka okkur á og afla okkur
reynslu á eigin spýtur. Era
þetta ekki dálítið kynlegar að-
ferðir í uppeldismálum ? Hulinn
líkami er freistandi, einmitt
vegna þess, að hann er hulinn.
Bannaðar kvikmyndir og dans-
sýningar æsa hugmyndaflug
okkar unglinganna, af því að
þær eru bannaðar. Segið mér í
hreinskilni — er ekki bann ykk-
ar oftast nær byggt á því, að
sýningamar séu í rauninni
smekklausar og siðspillandi ?
Og svo farið þið til að horfa
á ? Og þykist vera til fyrirmynd-
ar? Ja, svei!
57