Úrval - 01.10.1958, Page 99

Úrval - 01.10.1958, Page 99
ÁST OG GRÓÐUR ÚRVAL, var hitt, að hún hefði komið, en væri farin aftur. En það kom aldrei fyrir. Hún lá þarna alltaf og beið og virtist una sér vel; kampavínsflöskurnar stóðu í einni brunaliðsfötunni, en höfðu ekki verið opnaðar; hún var ýmist að lesa eða lá í hálfgerðu móki; líkami hennar varð stöðugt brúnni eftir þvi sem leið á sumarið, og hitinn hélst fram í september. Hvað hafði hún kallað hann? Grasguð? Jæja, það var að sumu leyti réttnefni. Það var ef til vill dá- góð lýsing á honum. En það var hún, sem í raun og veru var miklu líkari §■7330. Hún var ímynd sumarsins. Hún hafði verið jafn fullkomin og yndisleg, jafn stöðug og áreiðanleg, og alltaf jafn falleg, allt frá því er hann hitti hana fyrst kvöldið góða, þegar eikin var að blómgast og næturgalinn söng yfir bláklukkunum, þegar þau höfðu verið sammála um að sumarið mundi verða skemmti- legt, eins og það raunar varð. En allt í einu hætti sumarið að vera skemmtilegt í hans augum. 6. Það var einn sólheitan september- dag að hann kom frá London, og ók dálítið um landareignina, eins og hann gerði oft, áður en hann fór heim. Það var svo heitt að hann tók af sér hattinn og fór úr jakk- anum, þegar hann ók eftir skógar- götunni. Það var komið fram í sept- ember, en það var sama heiðríkjan og hitinn eins og í júlí. Fólk var alltaf að segja, að það myndi ekki eftir öðru eins sumri. Aðrir sögðu, að það minnti þá á annað sumar, þegar allir pollar þornuðu, eða á annað, þegar korn- bruni var algengur og menn urðu að lóga nautgripunum vegna vatns- skorts. Það var eins og sumarið ætlaði aldrei að taka enda. Á býlunum, sem hærra lágu og þar sem jarðvegurinn var sendinn, sá hann vatnsvagna á ökrunum. Neðar tóku við móar, sem voru rauð- ir af lyngi. Á þeim slóðum var sex feta þykkt mólag. Hann hafði aldrei getað notfært sér móinn; og þennan dag tók hann eftir því, að það var kominn eldur í hann. Hann stanzaði bílinn og fór út, og í sama bili kom einn af verkamönn- unum hans akandi á reiðhjóli eftir veginum. Hann nam lika staðar og bar höndina upp að húfunni. „Það er enn kviknað í mónum, herra", sagði hann. „Já.“ „Það logar í honum í nokkrar vik- úr, herra. Ómögulegt að slökkva." „Nei.“ „Ég man eftir því hvernig hann brann 1921, herra. Hann brann hálft sumarið. Eldurinn er undir yfirborð- inu.“ „Það er gallinn," sagði hann. „Alveg rétt, herra. Þó að maður haldi að manni hafi tekist að slökkva, þá er það misskilningur. Eldurinn logar áfram. Hann logar niðri í jörðinni, þar sem maður get- ur ekki séð hann.“ Hann svaraði engu., Þeir horfðu stundarkorn á reykinn, sem liðaðist hægt yfir rauðbrúnar burkna- og lyngbreiðurnar, sem voru alsettar 97
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.