Bókatíðindi - 01.12.1996, Qupperneq 3
Efnisyfirlit
Bókatíðindi, árlegt rit Félags íslenskra bókaútgef-
enda með kynningu á nýjum eða nýlega útgefnum
bókum hefur verið gefið út með svipuðu sniði og
nú síðan 1986. Aður var í nokkur ár gefið út kynningarrit
um nýjar bækur í samvinnu við Morgunblaðið og enn fyrr
„íslensk bókatíðindi“ í öðru formi. Núverandi
Bókatíðindi eru send á hvert íslenskt heimili og hafa
unnið sér þann sess að þykja ómissandi við val bóka til
jólagjafa og eigin nota og ómissandi þeim sem vilja kynna
bækur sínar almenningi, jafnt félagsmönnum sem
einyrkjum í útgáfu, stofnunum og ýmsum samtökum sem
gefa kannski aðeins einu sinni eða stöku sinnum út
bækur.
Til hagræðis þeim sem vinna við bækur, - bókaverði,
bóksala og afgreiðslufólk, hefur undanfarin ár verið bætt
við skrám í ritið og er nú fljótlegt að finna bókakynningar
eftir titlum eða höfundum auk þess sem hér er skrá yfir
útgefendur með nauðsynlegum upplýsingum fyrir þá sem
þurfa að panta bækur.
Ef marka má fjölda kynninga í Bókatíðindum hefur
bókaútgáfa aukist talsvert frá í fyrra en þá dróst hún held-
ur saman frá fyrra ári. Aberandi fleiri íslensk skáldverk
eru kynnt í þessu riti en í fyrra og mun fleiri handbækur
og bækur almenns efnis eru á ferðinni, en flóra síðar-
nefnda flokksins er reyndar mjög fjölskrúðug og spannar
yfir þjóðlegan fróðleik, fagrar listir og ljósmyndun, andleg
efni, ferðalög, ættfræði og árangur margra ára strits fræði-
manna. Að ógleymdum bókum á diskum og hljómbönd-
um - hljóðbókum sem fjölgar með hverju árinu.
Hvort sem fólk kýs afþreyingu eða fróöleik, nema
hvorttveggja sé, ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi í
Bókatíðindum, ekki síður börn og unglingar en þeir sem
eldri eru. Og þeir sem heppnir eru eiga von á bóka-
glaðningi happdrættis Bókatíðinda eins og fram kemur á
baksíðu.
Gleðileg bókajól!
f.h. Félags íslenskra bókaútgefenda
Vilborg Harðardóttir
Islenskar barna- og unglingabœkur . . . . .4
Þýddar barna- og unglingabœku . .14
íslensk skdldverk . . .23
Þýdd skáldverk . . .34
Ljóð . .43
Bœkur almenns efnis . .50
Ævisögur og endurminningar . . .69
Handbœkur . .77
Útgefendur , . .89
Höfundaskrá . . 90
Titlaskrá . .93
Leiðbeinandi verð
Uppgefið verð bóka í Bókatíðindum 1996 er
svokallað "leiðbeinandi verð" en ekki fast útsölu-
verð svo sem verið hefur. Eftir sviptingar á bók-
sölumarkaði undanfarin ár þykir ekki stætt á að
miða við fast verð í verslunum. Það leiðbeinandi
verð sem birtist með kynningu bóka í þessu hefti er
því það sem útgefendur gera ráð fyrir að verði
útsöluverð að viðbættum virðisaukaskatti.
Útgefandi: Félag íslenskra bókaútgefenda
Suðurlandsbraut 4A
108 Reykjavík
sími:553-8020, fax:588-8668
Hönnun kápu: Pétur Fjalar Sigurðsson
nemi í grafískri hönnun, MHÍ
Ábm.:
Upplag:
Prentvinnsla:
Litgreining:
Bókband:
Vilborg Harðardóttir
104.000
Isafoldarprentsmiðja
Prentþjónustan
Flatey
Sérútgáfa af Fréttabréfi Félags íslenskra bókaútgefenda