Bókatíðindi - 01.12.1996, Blaðsíða 20
Þýddar barna- og unglingabœkur
Þessi einstaklega fallega
og vandaða verðlaunabók
er eftir norska bamabóka-
höfundinn Kari Vinje
sem ýmsir hafa skipað að
bekk með höfundum á
borð við Thorbjöm Egner.
Bækur hennar hafa m.a.
verið kvikmyndaðar og
þýddar á fjölda tungu-
mála.
88 blaðsíður.
Salt ehf.
ISBN 9979-9225-1-6
Leiðb.verð: 1.740 kr.
SKEMMTILEGU SMÁ-
BARNABÆKURNAR
Stefán Júlíusson og
Sigurður Gunnarsson
Skemmtilegu smábarna-
bækurnar nr. 1—36 eru
vinsælustu bækurnar fyr-
ir lítil böm sem fyrirfinn-
ast á bókamarkaðinum.
Margar hafa komið út í
meira en 40 ár en em þó
alltaf sem nýjar. I ár koma
þessar bækur út: Láki nr.
7, Dýrin á bænum m. 18,
Iheimsókn hjá Hönnu nr.
21.
Fallegar — Vandaðar -
Ódýrar.
24-32 blaðsíður
hver bók.
Bókaútgáfan Björk
ISBN 9979-807-42-X-
/-431/-44-X
Leiðb.verð: 262 kr.
hver bók.
SKÓRNIR í
GLUGGANUM
Lisa Streetler Wenner
Myndir: Maribel
Gonzalez Sigurjóns
Þýðing: Vilborg
Dagbjartsdóttir
Bráðskemmtileg saga um
það þegar íslensku jóla-
sveinarnir kynnast sið-
um Sankti Kláusar. Bæði
höfundurinn og lista-
maðurinn, sem er af
íslenskum ættum, búa
hér á landi, en bókin var
unnin bæði á ensku og
íslensku.
24 blaðsíður.
Mál og menning
ISBN 9979-3-1454-0
/-1455-9 (ensk útgáfa)
Leiðb.verð: 1.290 kr.
SOKKI OG BOKKI
Daniela Kulot-Frisch
Þýðing: Hildur
Hermóðsdóttir
Fyndin og frumleg bók
fyrir 3-5 ára böm eftir
athyglisverðan þýskan höf-
und. Anna kann ráð sem
dugar þegar annar uppá-
haldssokkurinn týnist.
24 blaðsíður.
Mál og menning
ISBN 9979-3-1359-5
Leiðb.verð: 1.190 kr.
•fc%. .
Nimmor
STEINMUSIN
. Helen Craig teiknaði mýndir
ÍKAÚrÚÁFAN
STEINMÚSIN
Jenny Nimmo
Þýðing: Árni Árnason
Teikningar: Helen Craig
f þessari fallegu sögu leik-
ur mús úr steini stórt
hlutverk í lífi systkina
sem fara með foreldrum
sínum í sumarferð. Stein-
músin er saga um þörfina
fyrir vináttu og tilfinning-
ar henni tengdar sem
krefjast þess að vera tjáð-
ar. Höfundar bókarinnar
hafa unnið til alþjóðlegra
verðlauna fyrir barna-
bækur sínar. Tilvafin bók
handa yngri lesendum.
64 blaðsíður.
Barnabókaútgáfan
Dreifing: Bóksala
kennaranema
ISBN 9979-9154-9-8
Leiðb.verð: 1.190 lcr.
STÓRA
ÆVINTÝRABÓKIN
Einu sinni var...
Fallegu og sígildu ævin-
týrin, sem öll börn hafa
yndi og ánægju af, sam-
ankomin í eina stóra og
ríkulega myndskreytta
bók. Ævintýrin eru t.d.
Aladdín og töfralamp-
inn, Hans og Gréta, Tumi
þumall, Þrír litlir grísir,
Stígvélaði kötturinn og
mörg fleiri.
246 blaðsíður.
Skjaldborg ehf.
ISBN: 9979-57-330-9
Leiðb.verð: 1.870 kr.
W.D.VAlCAROSON
ANOE ZltANC
THOR
William D. Valgardson
Þýöing: Guðrún Björk
Guðsteinsdóttir
Sagan segir frá litlum
dreng í Kanada, Thor að
nafni, sem heimsækir afa
sinn og ömmu um jólin.
Hann hefur mestan
áhuga á að horfa á sjón-
varpið en afi hans, sem
stundar fiskveiðar á ísi-
lögðu Winnipegvatni,
þarf óvænt á hjálp hans
að halda vegna veikinda
félaga síns. Og Thor upp-
götvar að honum er ekki
fisjað saman þegar vól-
sleðamenn í nauðum
þarfnast hjálpar. Thor var
kjörin besta bók fyrir
börn yngri en sjö ára
þegar hún kom út í
Kanada 1994 en hún hef-
ur einnig verið gefin út í
Bandaríkjunum og Skand-
inavíu.
40 blaðsíður.
Ormstunga
ISBN 9979-63-009-4
Leiðb.verð: 1.290 kr.
TOMMI GISTIR HJÁ
ÖMMU
Kristiina Louhi
Þýðing: Olga Guðrún
Árnadóttir
Falleg bók handa yngstu
börnunum sem segir ffá
því að gott er að gista hjá
ömmu þegar pabbi og
mamma þurfa að heiman.
28 blaðsíður.
Mál og menning
ISBN 9979-3-1408-7
Leiðb.verð: 990 kr.
UNGFRÚ NÓRA
Annie M.G. Schmidt
Myndir: Carl Hollander
Þýðing: Jóna Dóra
Óskarsdóttir
Þegar ungfrú Nóra skýtur
upp kollinum verður líf í
tuskunum. Nóra er líkari
kisulóru en konu og
skrítnir hlutir fara að ger-
ast. Höfundurinn var
20